One Love <$BlogRSDURL$>
KÖNNUNIN

Hver er besti pókerspilarinn?

Dooroogangster
Maxó níu níu
Gunzinn da sprengja
Homie Q
Raggers sykur sonur
Ívar Baldvinnson aka LoneRanger
Kanoute
Guns3000
Biggit Le BIG
Tommi Óma
Joey BBQ
  Current Results

fimmtudagur, júlí 06, 2006

Klikkhaus vikunnar 

max-0-nine er orðinn klikkaður

ég hef áhyggjur af maxó vini mínum hann er víst bara meiddur og latur þessa dagana. hann er ekkert búinn að gera í sumar nema fara í sund. hann er ekki að vinna heldur er hann á atvinnuleysisbótum og hengur bara heima hjá sér og fer tvisvar sinnum í sund á dag. deginum eyðir hann þannig að hann sefur til 2 á daginn og fer þá í sund og svo fer hann heim og svo aftur í sund og svo heim í tölvuna. kallinn er svo að fara til USA í haust í háskóla á fótboltastyrk og hvað ætlar hann að gera þegar hann fer út og er ekki í formi? og þar að auki kostar það mikla peninga að fara svona út og ég er nú hræddur um að þessar atvinnuleysisbætur eru ekki að gefa mikið af sér og miðað við fatakaupaeyðslu hans þá er hann örugglega í mínus eftir mánuðinn. menn spyrja sig skítur magnús már peningum eða hvað?
ofan á allt þetta þá var hann maggi már búinn að vera edrú í 22 ár og hvað svo? síðustu helgi tók hann sig bara til og fór á fyllerí... föstudag og laugardag.
til að bæta gráu ofan á svart þá sveik hann líka loforð, loforð sem hann lofaði mér og hann sveik það gjörsamlega samviskulaus. hann var búinn að lofa því að þegar hann tæki sitt fyrsta fyllerí þá myndi hann láta mig vita og ég fengi að vera á staðnum en það gerði maxónine ekki hann hafði ekki samband.

þannig að þið sjáið, maggi már er að týna því og ég held að hann sé að verða klikkaðari en albert


This page is powered by Blogger. Isn't yours?