One Love <$BlogRSDURL$>
KÖNNUNIN

Hver er besti pókerspilarinn?

Dooroogangster
Maxó níu níu
Gunzinn da sprengja
Homie Q
Raggers sykur sonur
Ívar Baldvinnson aka LoneRanger
Kanoute
Guns3000
Biggit Le BIG
Tommi Óma
Joey BBQ
  Current Results

miðvikudagur, júní 28, 2006

Tímamót 

það er komið að tímamótum í lífi dooroo og nei það er ekki eins og þið haldið, ég er ekki að fara að skipta yfir í blablabla.bloggar.is eða eitthvað kjaftæði eins og margir hverjir nei ég svík ekki blogspotið nei ég svík það ekki.

þessi tímamót sem ég tala um eru þau að í dag 28. júní 2006 skipti ég um lið. ég er formlega hættur í fylki og er kominn í stjörnuna. maður var búinn að vera í fylki í 6 ár og það var alveg frábær tími þar sem ég kynntist mörgum af mínum bestu vinum í dag. ég er mjög þakklátur fyrir þau tækifæri sem ég fékk í fylki og ég held ekki að það hafi verið margir sem bjuggust við því að ég, markmaðurinn úr ír fengi samning sem framherji hjá úrvalsdeildarliði fylkis. það slær í manni fylkishjarta og ef allt hefði farið eins og maður hefði best á kosið þá væri maður að spila í árbænum næstu árin með bertanum, ragga frænda og að ógleymdum jollo héðins sem gefur aldrei á mig. en þar sem ég var mikið meiddur síðustu 3 árin og tækifærin af skornum skammti þá var kominn tími til að reyna fyrir sér einhverstaðar annarstaðar. það er erfitt fyrir mig að kveðja klúbbinn og ég vona að einhvern tímann seinna geti maður spilað alvöru leik fyrir félagið en núna er bara nýtt challenge og vonandi að maður geti gert eitthvað jákvætt í 1. deildinni með stjörnunni í sumar. það er leikur annað kvöld, stjörnuvelli á móti víking ólafsvík kl 20 ííííííííhhhaaaaaaaa

þessi til hægri á myndinni, leikmaður nr. 28, þessi með skrýtnu hendurnar er jónsi en hann fagnar væntanlega brottför minni úr fylki þar sem hann er núna aftur orðinn svartasti maður liðsins, jónsi hatar ekki tanið. björninn nr. 15 þarna



eitt enn, ég held það að það hafi sannast í dag að ég myndast ekki vel og þess vegna ætla ég að nota tækifærið og koma því á framfæri hérna að það verða engar myndatökur leyfðar af mér í framtíðinni og sá hinn sami sem reynir að taka mynd af mér verður myrtur á hrottalegan hátt.

föstudagur, júní 23, 2006

Tékkið á Oddinum 



oddur fýlar niggaz with attitude

miðvikudagur, júní 21, 2006

Bæ bæ Culiacan 

culiacan er dead. þetta er ákveðið við raggers förum ekki aftur á culiacan. fór á culiacan í hádeginu og hvað þetta eru bara aumingjar, þau eru búin að minnka skammtana, eitthvað að spara eða eitthvað. brauðið hangir utan á öllu af því að þau láta svo lítið inní burritoinn. ég var ennþá svangur eftir burritoinn, það á ekki að gerast! í þokkabót þá er þetta alveg bragðlaust, maður biður um sterka sósu og hún er bara alveg bragðlaus og þetta er ógeðslegt ok.
serranos þar enginn að spara neitt og ég get ekki klárað stóran burrito því það er svo mikið í honum og sterka sósan er sterk og svo er líka hægt að fá nachos inní okok serranos er málið og núna finnuru mig og raggers bara á serranos en kannski að heimski albert verði á culiacan einn að rembast.
svo vildi ég koma einu á framfæri fyrir albert, já brauðið utan á burrito er mjög mjög óhollt.

fréttir af raggers en hann er maðurinn sem byrjaði í nýrri vinnu á mánudaginn síðasta og hætti svo í gær, þriðjudag fyrir hádegi. heyrðu hann þurfti að vera á lyftaranámskeiði á launum sem þýðir sitja inn í kennslustofu og hlusta á eitthvað lyftaradæmi og fara svo heim kl 2 en vera samt á launum allan daginn svona eiginlega eins og vera í skóla og vera á launum vááááá raggers voða erfitt. jæja honum fannst það erfitt þannig að hann hætti bara en tek það fram að hann átti bara að vera á þessu lyftaranámskeiði í þrjá daga og tek það líka fram að hann var ekki einn á þessu námskeiði með feitum kaffiþambandi leiðindaköllum svo að honum leiddist neibb hann var með tveimur vinum sínum já það verður seint sagt að hann raggers frændi er vondur við sjálfan sig

þessi er eitthvað voða góður við sjálfan sig:


finnur þennan að gráta einan úti í horni á culiacan og hann er líka dálítið góður við sjálfan sig:

mánudagur, júní 19, 2006

Til hamingju með afmælið frændi 

mr brown suga á afmæli í dag. hann frændi minn er 20 ára í dag og hann var að vonum mjög glaður þegar dooroo.blogspot.com hafði samband við hann í dag. "oi son me nephew ég held ég verði bara sveittari með aldrinum jú ég er mjög ánægður að vera orðinn 20 ára" svaraði hann þegar hann var spurður út í stóra daginn sinn en þess má einnig geta að þessi dagur er einmitt líka kvennréttindadagurinn hahahaha það er skemmtileg kaldhæðni í þessu þar sem raggers er jú mikill kvennhatari.
raggers hélt upp á afmælið sitt á föstudagskvöldið og bauð bara sveittum karlmönnum þar sem hann hatar kvennfólk og það myndaðist sveitt hommastemning í partýinu þegar allir karlmennirnir voru saman að syngja ó maría með gretu mjöll og losing a friend með nylon en svo tóku menn sig nú á undir lokin og settu allt í botn með laginu pendulum. raggers frændi hélt svo áfram að halda upp á afmælið sitt og fór niðrí bæ og lét meðal annars kýla sig kaldan og er núna með myndarlegt glóðurauga en kannski var þetta bara lán í óláni ef höggið náði að eyðileggja köngulóarbúið undir auganu á honum. eyjólfur héðinsson var hvergi sjáanlegur allt kvöldið en halla handlagna sást stíga trylltan dans á vegamótum með englavængi á bakinu en eins og áður sagði þá var eyjólfur héðinsson hvergi sjáanlegur

afmælisbarnið í góðum gír, ekkert kvennfólk í kring:

fimmtudagur, júní 15, 2006

HM boltarnir eru svindl!! 



Upp hefur komist um samsæri á HM 2006 sem tengist háttsettum mönnum innan þýska knattspyrnusambandsins og ADIDAS sem framleiðir HM Teamgeist boltana sem eru notaðir á HM 2006.
Nýji HM Teamgeist boltinn er ekki venjulegur bolti eins og oft hefur komið fram, með sína 14 fleti en það er víst ekki það eina óvenjulega við þessa bolta. Í öllum keppnisboltum á HM 2006 hefur verið komið fyrir örflögu sem tekur við hátíðniskilaboðum frá 6 örflögum sem staðsettar eru inní stöngum allra marka á HM 2006. Þegar leikmaður skýtur knettinum í átt að markinu þá skynjar ein þessara 6 örflaga sem er í stöngunum, fer eftir því hvert boltinn stefnir, örflöguna í boltanum og sendir skilaboð í boltann þannig að boltinn tekur ákveðnari beina leið og eykur þar að auki hraðann í átt að markinu, í rauninni virkar þetta bara eins og segull.
Markmenn höfðu kvartað undan því að stundum væri alveg vonlaust að reikna út stefnu boltans og hraða sem kæmi þeim úr jafnvægi og því erfiðara að verja boltann og eftir að menn tóku ítrekað eftir því hversu margir leikmenn á mótinu virtust hafa tök á því að "bomba" boltanum sem áður fyrr þótti einungis list sem snillingar á borð við Roberto Carlos réðu við þá var ákveðið að rannsaka boltann og kom þá þessi nýja tækni í ljós.
Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál þar sem þarna er verið að ræða um stærsta íþróttaviðburð í heiminum sem milljónir manna um allan heim fylgjast með. Áhugamenn um fótbolta hafa aldrei verið sáttir þegar breytingar á reglum þessa vinsæla leiks eru ræddar og segja hann fullkominn eins og hann er. Til að mynda hafa nýjustu hugmyndirnar um að hafa örflögu í boltanum til að úrskurða um hvort boltinn fari yfir marklínu í vafamálum valdið miklu fjarðafoki og þetta þykir því mikið tiltökumál, þetta uppátæki þeirra þýsku að ráðast í svona verkefni án samþykkis eða vitundar nokkurs manns.
Þar sem þetta var algjörlega óvitað fyrir keppnina hefur verið ákveðið að klára riðlakeppnina með þessum boltum svo öll lið fái jöfn tækifæri en eftir riðlakeppnina verða boltarnir teknir út og skipt fyrir venjulega bolta.
Ástæðan fyrir þessu uppátæki átti að vera til þess að auka hróður keppninnar í Þýskalandi og hennar minnst sem "HM 2006 í Þýskalandi; keppni markanna miklu". Talsmenn þýska knattspyrnusambandins og ADIDAS vildu ekkert tjá sig um málið en þar sem þetta er í allri óþökk FIFA má búast við hörðum aðgerðum frá FIFA og talið er mjög sterklega að þeir munu rifta samingi sínum við ADIDAS og að Þýskaland verði útskúfað frá næstu tveim ef ekki þrem næstu HM keppnum 2010, 2014 og 2018. Ekki hefur þó verið ákveðið hvað verður um þáttöku þýskalandsliðsins í þessari keppni.


Breiðholtsslagur 

það er sannkallaður breiðholtslagur í kvöld þegar ÍR tekur á móti leikni í bikarnum. Gunzinn bomba týndi sonurinn úr ÍR er nú orðinn Leiknismaður og hefði nú verið gaman að fylgjast með honum kallinum móti sínum gömlu félögum en gunzinn boma er víst meiddur og hann verður ekki með í kvöld því miður fyrir alla áhorfendur en hann verður líklega á áhorfendabekkjunum í kvöld og spurningin er hvort liðið styður drengurinn?? hmmm já þetta verður spennandi kannski að jarlinn öxl fái að spreyta sig.
gunz hefði getað tekið þetta move í leiknum í kvöld:


en gudjohnsen er hættur í chelsea og þá get ég hætt að halda með þessu liði eða ég er samt ekki alveg búinn að ákveða það en ég held að ég geri það. núna er hann bara kominn í barcelona sem hefur alltaf verið uppáhaldsliðið mitt í öllum heiminum þannig að núna er ég mjög sáttur íííííííííhhhhaaaaaaa eins og gunzinn bomba segir. ég ætla á nou camp og emirates stadium í vetur íííííííííhhhhaaaaaaaa eins og gunzinn bomba segir.


föstudagur, júní 09, 2006

Worst week of my life 

síðasta vika er búin að vera skelfileg fyrir mig. fyrir það fyrsta þá fór kærastan sandra ástin mín bara frá mér til búlgaríu til þess að djamma í tvær vikur með verslóhommum og sigga og í þokkabót var hún lamin af strák og þurfti að fara á spítala að láta sauma sig og eitthvað rugl. ég gat náttúrlega ekkert gert nema vera hér og hafa áhyggjur. svo er ég búinn að vera í ruglinu í fótboltanum. ég er eiginlega án liðs núna og veit ekkert hvað er að gerast í þessum málum, menn eru bara að hafa mig að fífli. svo er ég búinn að vera að vinna og vinna og 6 sinnum er ég búinn að vera vinna 8 - 23 sem þýðir ekkert líf nema bara vakna-vinna-sofa, alveg glatað. ofan á þetta þá er raggi að hætta í vinnunni í dag og ofan á það þá er bíllinn minn að hrynja í sundur og ofan á það þá virkar 6 takkinn ekki á símanum mínum og ofan á það þá er pabbi ekki búinn að kaupa sýn og ofan á það eru 5 dagar þangað til sandra kemur heim


lögin í spilun: lonely með akon og all by myself með celine dion

miðvikudagur, júní 07, 2006

It's all good baby baby 

já núna er maður bara að vinna. ég bara vinn og vinn með raggers brown frænda mínum, við erum alltaf að vinna 8-23 og svo förum við á pöbbinn eftir það og fáum okkur hálfann lítinn bjór og syngjum ó maría af því að raggers er orðinn alvöru karlmaður, raggi þurfti smá tíma en nú kann hann þetta sveitti gaur hehe já. það er svo gaman að vinna með raggers brown af því að ég ræð yfir honum ég er yfirmaðurinn hans, ég segi raggi hoppaðu og hann segir yes master hversu hátt frændi hahahaha raggers.
stundum held ég nú bara að ég sé að vinna með alberti og segi what?? hvað ertu að segja heimski frændi en stundum held ég að ég sé að vinna með einstein skiljiði og ég segi word up frændi. ef við förum svo í orðaleik með þetta þá getum við sagt albert einstein hehe já guð er kaldhæðinn.



ok nú er ég búinn að ákveða að ég nenni ekki að tala við eyjó nema hann hætti að segja jáááááá og raggi ætlar að líka að hætta að tala við hann af því að ég ræð yfir raggers og hann þarf að hlýða heimski frændi.

þessi heimski frændi á svo afmæli bráðum og hann segir að það verði betra en afmælið hans alberts ok hann verður þá að standa við það þessi heimski frændi. hann verður að taka yfirdrátt og gera þetta almennilega.

sumir skildu ekkert í þessu bloggi, kannski enginn, nema þá þessi heimski frændi hann kannski skildi mig.

eitt heilræði hérna í lokin sko flestar kellingar eru bara goldiggers og druslur . ekki verða ríkir og frægir og ná ykkur svo í kellingu nei náið fyrst í kellinguna og látið hana elska ykkur eins og þið eruð í raun og veru. annars veistu ekki hvort kellingin elskar þig eða hvort hún bara goldigger og drusla.

en ég heyrði að heitasta og nýjasta og flottasta síðan í dag sé www.lomez.bloggar.is já frændi sagði mér þetta í dag

laugardagur, júní 03, 2006

Gunni vinur minn í ÍR er farinn í Leikni 

Eins og flestir hafa líklega tekið eftir þá hefur Leikni borist öflugur liðsstyrkur. Gunnar Hilmar Kristinsson, eða Gunzinn eins og hann er betur þekktur, hefur fengið félagaskipti úr Keflavík. Gunnar hefur æft af krafti með Leikni að undanförnu og staðið sig vel enda draga fáir það í efa að þarf fer leikmaður sem kann sitthvað fyrir sér í íþróttinni fótbolta.

Það sem hefur vakið hvað mesta athygli við þessi félagaskipti er að Gunnar er uppalinn ÍR-ingur og hefur látið það út úr sér að aldrei myndi hann spila fyrir Leikni. En það hafa fleiri sagt og síðan sem betur fer séð ljósið. Gunnar er ekki fyrsta sendingin sem við fáum úr Neðra-Breiðholti og vonandi mun hann finna sig vel hjá Leikni.

„Leiknir er í 1. deild og það hafði stór áhrif á þessa ákvörðun ásamt því að ég þekki alla strákana í liðinu vel. Mér fannst það bara réttast fyrir mig á þessum tímapunkti að stíga þetta skref. Ég mætti á æfingu hjá ÍR og í hreinskilni sagt fannst mér það bara leiðinlegt og ég var ekki að fíla mig,“ sagði Gunnar þegar Leiknir.com spjallaði við hann eftir æfingu í kvöld, hans fyrstu formlegu æfingu sem leikmaður Leiknis.

„Ég setti stefnuna á að komast til Bandaríkjanna í nám og taldi það vera best fyrir mig að spila á hærri styrkleika en í 2. deildinni,“ sagði Gunnar en hann hefur að sjálfsögðu enn sterkar taugar til uppeldisfélagsins. Leikmenn Leiknis þekkja Gunnar vel en hann á marga vini og félaga innan herbúða Leiknis. Hann gekk til liðs við Keflavík frá ÍR fyrir sumarið 2005 fyrir orð Guðjóns Þórðarsonar sem þá þjálfaði Keflavík.

Gunnar spilaði tíu leiki með Keflavík í Landsbankadeildinni í fyrra og skoraði meðal annars fyrir liðið í Evrópukeppninni á Laugardalsvelli. Hann er á 22 aldursári og á að baki þónokkra unglingalandsleiki. Hann hefur þegar leikið sinn fyrsta leik í búningi Leiknis en það var í gærkvöldi með U23 liðinu þar sem hann spilaði á miðri miðjunni og var besti leikmaður okkar. Dreifði spilinu vel og leit vel út. „Já ég fann mig bara nokkuð vel og átti góðan leik,“ sagði Gunnar.

Gunnar getur spilað á miðjunni eða á vinstri kanti og einnig frammi ef þörf er á. „Samkeppnin um að komast í liðið er mjög hörð og ég tel það mjög jákvætt. Það gerir manni ekki gott að eiga víst sæti í einhverju liði og svo er það bara ekki skemmtilegt,“ sagði Gunnar sem hefur æft með Leikni í þónokkurn tíma. „Það er nóg af boltaæfingum hjá Leikni og mér hefur liðið mjög vel á æfingum,“

Það er síðan ótrúleg tilviljun að sama dag og Gunnar Hilmar fær félagaskipti í Leikni þá dragast ÍR og Leiknir saman í bikarnum. „Þetta hlýtur að hafa verið eitthvað fyrirfram ákveðið. Nú er bara að reyna að koma sér í betra form sem fyrst og spila þennan leik. Ef ég verð kominn í form ætla ég að slá ÍR-ingana út úr bikarnum, sagði Gunnar að lokum og glotti.

gunzinn vildi commenta á þetta hérna á dooroo.blogspot.com og auðvitað má hann það ég gef bara gunzanum orðið:

"Gunzinn da bomb hérna da bomb bomb bomb já ég er mættur í Leikni ííííííhhhaaaaaaaa in the ghetto pááápááápááááááá. Kallinn á eftir að rústa fyrstu deildinni múhahahaha, stefnan er sett á 10 mörk og komast í lið ársins í 1. deildinni og valinn besti leikmaðurinn eins og þegar ég komst í landsliðið á shellmótinu og var svo kosinn besti maður mótsins ííííííííhhhhaaaaaaaaaa. Ég og MAXÓNINE a.k.a. Maggi grenjuskóðja eins og ég kýs að kalla hann þessa dagana og Jalli PUNGUR eigum eftir að rústa þessu í sumar og svo tökum við úrvalsdeildina á næsta ári og Juventus kaupir mig og Gumma Mete hehehe, kallið mig GUNZINN da leiknismann hehe en ég verð samt alltaf Ír-ingur ég er með Ír-blóð.

Jæja peace ég er farinn á æfingu"



This page is powered by Blogger. Isn't yours?