One Love <$BlogRSDURL$>
KÖNNUNIN

Hver er besti pókerspilarinn?

Dooroogangster
Maxó níu níu
Gunzinn da sprengja
Homie Q
Raggers sykur sonur
Ívar Baldvinnson aka LoneRanger
Kanoute
Guns3000
Biggit Le BIG
Tommi Óma
Joey BBQ
  Current Results

miðvikudagur, nóvember 30, 2005

Gameblogg 

ég verð að kvarta yfir því hvað ég er að standa mig illa þessa dagana. ég fór í einvígi við albert í pro um daginn og hann vann mig 4-3 og svo 7-1, það var vont og ég á eftir að hefna mín á alberti. síðan fór ég og raggers í einvígi og það fór 4-4, hann gafst upppp og sagði jooooost ég er að koma, ég sagði jájá raggers bla bla. núna líður mér illa, gengs ekki lengur. ég var að hugsa um að fara að drífa mig í að keppa við gunzinn til að rífa sjálfstraustið upp aftur.

í gær þá var svo auðvitað póker. þorri, andri, óli, maggi, geir, raggers, adrian og ég (en ekki gunx hann er retired, lagði peningana sína á hilluna) mættum á players í gærkvöldi og spiluðum little some poker. ég hef aldrei staðið mig jafn illa í póker á ævinni. ég vann ekki einn pott og það var alveg ógeðslega gríðarlega leiðinlegt og pirrandi og hver var auðvitað chipleader?? já það var maggi, hann er algjör vibbi þesssi maður og svo lagði hann leik sinn upp í gær upp á það að leggja mig í einelti. ég átti alltaf lítið chips og sleppti oft að vera með en svo þegar ég ætlaði að vera með eða var big blinds þá raisaði hann alltaf oooohhhhhh hvað hann var leiðinlegur við mig í gær. ég keypti mig tvisvar inn en afhverju má ekki kaupa oftar inn??? þetta eru mínir peningar og þið bara græðið meira ha. þetta var slæmt kvöld en ég er ekki quitter ég ætla ekki að hætta (kannski smá spilafíkill hmmmm??). ég vil fara að taka einhverja potta og ég vil líka stofna nýjan hóp af spilurum og þeir sem mega vera með í þeim hóp eru: ALLIR NEMA MAGGI. og við gætum bætt við í hópinn mönnum eins og eyjólfi og heimi, ég veit að þeir eru báðir spilasjúkir og hata ekki að veðja upp á money.

en það er eins og þeir segja, óheppin í spilum og heppinn í ástum


sunnudagur, nóvember 27, 2005

Það er hressleiki á sunnudegi 



bachelor íslands hahahahahaha.
þetta atriði þarna þegar kellingin neitaði bachelornum er eitt það fyndasta sem ég hef séð. hann bjóst engan veginn við þessu og varð eins og auli og fnæsti eitthvað svona og beygði sig niður af pirringi. svo þegar hann kallaði á seinni stelpuna og hún eitthvað ég veit ekki hvort ég vilji taka við rósinni núna og hann var alveg að trompast hahahahaha VILTU TAKA VIÐ RÓSINNI EÐA EKKI!!!
þessi maður er svo týpískur wifebeater, maður sér það alveg á honum, honum langaði mest að stökkva á stelpuna og lemja hana í klessu af því að hún var að láta hann líta svo illa út. hafiði ekki séð án djóks hvað þessi maður er veill á geði?? í alvörunni það sést svo á honum hvað hann er klikkaður. eitt atriði þarna þegar þau voru eitthvað að kyssast voða rómó þá fór hann út með tunguna og ég hélt að hann ætlaði að sleikja af henni andlitið hahahahahaha þessi maður er snargeðveikur. ég er að segja ykkur það, eftir nokkra mánuði þá kemur það í dv að stelpan sem hann endar með í þættinum, er öll lurkum lamin eftir hann og segir reynslusögu sína af sambandi sínu með bachelor íslands sem var helvíti líkast. ,,þegar ég verð gamall ætla ég að vera með skegg og í hawai skyrtu og með bumbu" hahahahaha wifebeater
geðveikin skín úr augunum:


sambandi við þetta herra ísland, gæjinn þarna þór sem kom aldrei mynd af, gaman fyrir hann. en jæja það sem menn virðast heldur ekki tekið eftir er að í staðinn þá var gaurinn sem vann herra ísland sýndur tvisvar hmmm er þetta ekki eitthvað skrýtið júbb mér finnst það, enda er þessi gaur forljótur og asnalegur. ég æli á þetta

núna vil ég líka koma því á hreint að ég dooroo sem ykkar helsti þátta-supplier er hættur að koma í housecalls með harða diskinn. það var nú einu sinni sem ég vildi ekki koma með hann í húsvitjun því ég sagði að hann myndi eyðileggjast á endanum ef ég er alltaf að fara með hann útum allt en það var bara hlegið að mér og gert lítið úr mér. í gær kom það svo fyrir, harði hætti að virka!!!!!!! ÉG VARÐ BRJÁLAÐUR!!! ég náði samt að laga hann en núna verðið þið bara að koma til mín ef þið viljið eitthvað, ekkert rúgl lengur. svo er það líka ég sem þarf að eyða tíma í að downloada og þarf að borga fyrir downloadið hahahaha

steikarpör dagsins:
NEI þú hugsaðir vitlaust, albert átti þau ekki
ég fór út í hraðbanka til að taka út pening og hugsaði ok ég ætla að taka út 15000kr. þegar ég var að taka peninginn út kom spurning á skjáinn viltu kvittun? og ég bara hmmm já kannski að ég kíki á innistæðuna sjá hvað ég er búinn að vera að eyða miklu. svo var ég orðinn svo fullur eftirvæntingar að vita hver the check balance var að ég tók við kortinu og reif kvittunina úr hraðbankanum og las á hana og svo henti ég kvittuninni í ruslið og fór út í bíl og keyrði í burtu. svo fór heilinn að hugsa um næsta move, sem átti að vera að taka við peningnum af hraðbankanum en ég var löngu farinn, keyrandi í bílnum syngjandi total eclipse of the heart þegar ég fattaði þetta. svo náttúrlega snéri ég við en ekkert bjátaði á peningnum mínum og ég skil ekki afhverju. mér þykir þetta leitt

ég er dálítið svekktur eftir síðustu færslu, því ég fékk svo fá comment miðað við færsluna á undan. ég hélt að ég væri orðinn svona heitur gaur eins og albert váááá sem fær öll commentin og allar stelpurnar á eftir honum. nei ég sé það núna, þetta var bara svona ones in a lifetime dæmi, það er aðeins einn svona sjóðandi heitur albert vááá ég brenni mig í augunum þegar ég horfi á hann össssss
þennan gaur í herra ísland já takk hihi


fimmtudagur, nóvember 24, 2005

Albert Ingess ég er með símann þinn 

ég fór á netbankann og tékka á yfirlitinu í góðu chilli. svo sé ég færslu síðan um síðustu helgi: GLAUMBAR 700kr. sko what??? ég hef ekki farið inn á þessa skítabúllu í marga mánuði og fór ekki einu sinni í bæinn um helgina. þetta er eitthvað drullugt, annað hvort er einhver að nota gamalt kort sem ég hef týnt, en ég er samt búinn að láta loka öllum gömlum kortum eða þá að glaumbar skítabúlla er einhvern veginn að höstla fólk með því að draga af gömlum viðskiptavinum svona smá hér og þar og halda að enginn taki eftir því. ég ætla að tékka á þessu á morgun og ég er ekki ánægður skal ég segja ykkur ef einhver er að stela svona frá mér. ef einhver er að stela þá hringi ég í frænda og fæ hann með mér í bardagajakkanum og með bardagabareflið sem hann geymir í bílnum og læt hann útkljá málið fyrir mig.

mr brown bara að let you know að ég á 5 seríur af curb your enthusiasm. það eru svo margir sem kunna ekki að meta þessa þætti en þeir eru bara vitlausir og vita ekkert. albert að vísu skilur þá líka og hann má koma með okkur að horfa á þá en þá verður hann að sitja í versta stólnum. við verðum að fara að skipuleggja þetta.

össhhhh hvað ég gerði góð kaup í elko um daginn. keypti tvær gæða dvd myndir, a night at the roxbury og scarface á tvær fyrir 2000, það er hægt að gera gott bíókvöld úr þessu ha.
every dog has it's day


þriðjudagur, nóvember 22, 2005

Gunzinn í veðmáli 

Gunzinn says:
ég skal taka þig í bekknum
Gunzinn says:
gefðu mér mánuð

Dooroogangster says:
hehe
Dooroogangster says:
try it

Gunzinn says:
ok hvað tekuru

Dooroogangster says:
115

Gunzinn says:
kjaftæði

Dooroogangster says:
nob

Gunzinn says:
ok ég þarf meira en mánuð
Gunzinn says:
2 mánuði
Gunzinn says:
skal ég taka 120
Gunzinn says:
viltu veðja upp á það

Dooroogangster says:
já endilega

Gunzinn says:
ok veðmálið er að ég skal taka 120 eftir 2 mánuði
Gunzinn says:
er það deal
Gunzinn says:
hvað viltu leggja undir

Dooroogangster says:
ok kas si af bjó

Gunzinn says:
ekki áhugaverð verðlaun
Gunzinn says:
fyrir mig

Dooroogangster says:
eða nei 5000

Gunzinn says:
hmmmmmm
Gunzinn says:
ég þarf bara að lyfta einu sinni
Gunzinn says:
niður og upp

Dooroogangster says:


Gunzinn says:
ok

Dooroogangster says:
5000 ok?

Gunzinn says:
ég var að kaupa bekkpressu áðan
Gunzinn says:
hahahahahhaha
Gunzinn says:
núna verður tekið á því
Gunzinn says:
ok
Gunzinn says:
eða bíddu
Gunzinn says:
bíddu bíddu

Dooroogangster says:
hehe hvað?

Gunzinn says:
ef ég á að taka 120 þá verður þú að taka 130

Dooroogangster says:
já gleymdu því ég er ekki að fara focusera á bekk núna, ég er að einbeita mér að því að styrkja lappirnar

Gunzinn says:
þetta veðmál er soldið ´þér í hag sko

Dooroogangster says:
sko gunni ef þú ert maður orða þinna og segist geta tekið 120 eftir 2 mánuði þá skaltu gera það, ekki reyna að bulla þig útúr þessu

Gunzinn says:
hahahahahaha
Gunzinn says:
gefðu mér einn sólarhring til að hugsa um ég þarf að spurja bróðir minn hvort ég geti það
Gunzinn says:
það má nota öll efni ekki satt

Dooroogangster says:
jújú ef að þú ætlar að vera einhver sterabolti ok gerðu það og þá kalla ég þig alltaf gunni steri

Gunzinn says:
þú ert búin að lyfta í 20 ár
Gunzinn says:
hahahahhahaahhaha
Gunzinn says:
hahahahahhahaha
Gunzinn says:
nota ekki eiturlyf

Dooroogangster says:
gott

Gunzinn says:
gott tilbaka

Dooroogangster says:
22. janúar ætlar gunzinn að taka 120 í bekk annars er það 5000kr fyrir dooroo

mánudagur, nóvember 21, 2005

All good 

maður fór auðvitað í póker á laugardaginn í max-palace-the-shag-palace.
max-o-nine sagði við mig að það hefði verið boðið 75 þús í póker borðið sem kostaði hann 12 þús að búa til og hann hafi neitað útaf tilfinningalegu gildi fyrir borðinu, jájá maggi hættu þessum lygum.
how sweet it was að sjá magga detta út í fyrsta spili. alltaf þegar ég hef verið að spila með honum þá hefur hann unnið stórann pott í fyrsta spili og þá er ekkert aftur snúið, maður getur bara spilað upp á annað sætið. en maggi fór all in á móti gunz í fyrsta spili og tapaði. gunni, sem var með konugleraugun sín, er svo góður póker spilari, því hann setur sig alltaf svo ofarlega á þessa lista sína, tapaði öllu veldinu innan skamms með kjánaskap. mr brown var heppinn og blindfullur haha fyndið að sjá hann, hann var farinn að kalla menn röngum nöfnum og skamma mig fyrir ekki neitt. ég var óheppinn, datt út með röð 8 til drottningu en maggi pornó var þá með 9 til kóng rusl. held að helgi ólafs, maggi pornó og raggers hafi skipt pottinum á milli sín eftir 5klst game eða eitthvað, ég veit það ekki, fór snemma heim.
kemur mér á óvart að gunzinn hafi ekki sett á síðuna sína að hann væri hættur að drekka, hann setur það alltaf á síðuna sína eftir fyllerí að hann sé hættur að drekka af því að hann gerir alltaf einhvern skandal, en gaman af honum gunsa, hann er klikkaður
konan með appelsínugulugleraugun:


jájá ég heyrði að...
gunnar er orðinn dópsali eða eitthvað, ég veit ekki. hann allavegana keypti sér nýjan benz og ætlaði að berja helga ólafs vin sinn.
maggi már gafst upp eftir eina æfingu með fylki og ætlar aftur heim í leikni
halldór hilmar er farinn að taka 70kg í bekk, til hamingju
albert er the hottest pimp in business, ég hef aldrei séð né vitað af slíku áður vá
mr brown einsetur sér að pirra frænda sinn þessa dagana, veit ekki hvað gengur að honum
heimir ætlar í fittness á næsta ári og fylgir því svo eftir með þáttöku í herra ísland



lagið í spilun: al green - love & happiness

föstudagur, nóvember 18, 2005

Raggi rúnk er hress því núna er hann kominn í helgarfrí 

fyrir það fyrsta þá er albert alveg ágætur í pro en einn daginn á ég eftir að whoop his ass og þá á ég eftir að segja svo oft niðurlæging niðurlæging niðurlæging niðurlæging.... svo deyr albert

ef við erum að tala um frænda þá skal ég segja ykkur það að hann hringir aldrei í mig og þegar ég hringi þá segist hann vera að fara taka konukvöld og að ég sé hálfur svikari og hálfur frændi og svo skellir hann á mig

já ég vil hvetja alla (þá á ég ekki við albert, heldur allir í fleirtölu) að hlusta á x-ið 97.7 í kvöld kl 21 og heyra danna deluxe þreyta frumraun sína í útvarpi, við skulum sjá til hvernig hann stendur sig. eftir þáttinn bíður danny ykkur svo á prikið í partý og það verður tilboð á barnum til 2 ok. útvarpsþátturinn heitir blautt malbik og verður á dagskrá á alla föstudaga á exinu kl 21 til 23

viljiði vita hvernig knútur lítur út fullorðinn? ok ekkert mál tékkiði bara á forsíðunni á morgunblaðinu í dag og þá sjáiði mynd af fullorðnum knúti

jæja ég þarf að drífa mig, það er verið að to...

Þetta er fyrir Daða 

Roy Keane hættur hjá Man Utd!

já núna er manchester united búið að skíta í sig. af því að keane er svo klikkaður og vill ekki láta reka sig og er svo geðveikur, þá á hann eftir að vakna upp einhvern morgunin á næstu dögum, fara út í bílskúr og ná í allar byssurnar sína, svo fer hann beinustu leið á æfingasvæði man u og skýtur allt í tætlur, leikmenn jafnt sem annað.
þannig að til hamingju daði





sunnudagur, nóvember 13, 2005

Good Weekend 

það var tekinn þéttur pakki um helgina maður æ æ æ.
á föstudaginn fórum við í póker og ég ætlaði ekki að trúa því en mangús már vann pókerinn.



á laugardaginn hélt danny deluxe hélt upp á tvítugs afmælið sitt og bauð fjöldanum öllum af fólki. sagði við mig að hann hefði boðið um 80 manns heim til sín að fagna tímamótunum og ég sagði við hann ertu eitthvað geðveikur?? það eru frekar margir svona í heimahúsi!!! hann bara nei nei það mæta ekkert allir. ég held samt að allir hafi mætt því það var troðið útúr dyrum.
þetta partý var off da hook ef þið vitið hvað ég meina, svona svipað eins og afmælin þarna á sirkus, supersweet sixteen eða eitthvað hihi... geðveikt massaðir dj-ar spiluðu dúndrandi góða tónlist, bjórinn flaut þarna um út um allt og ég held að hann hafi barasta ekki klárast þegar allir voru farnir, útitjald fyrir þá sem vildu tjilla úti og svo var óli danski þjónn. danni veit hvernig á að henda veislu skal ég segja ykkur. þetta partý fær 10/10 í einkunn madness segi ég ykkur MADNESS
því miður þá gleymdist myndavélin, hún var fullhlaðin fyrir kvöldið, ekki eins og gerðist um daginn hehe manstu albert, en ég var svo mikill fáviti að gleyma henni. niðrí bæ hitti ég alberto schillazzi hann var eldhress og með fullt af kellingum á eftir sér váá. gunzinn sást þarna líka og ég held að hann sé að taka aftur upp þarna artí fartí fílingin sinn

hann leit einhvern veginn svona út, gunzinn bomba.
maggi mári elskar bæinn, gunni sagði: sko ef maggi elskar að fara svona í bæinn edrú þá veit ég ekki hvernig hann myndi verða ef hann færi fullur í bæinn, shit hann myndi bara aldrei fara heim. maggi vildi alltaf hitta damien duff og var alltaf diddi komdu og hittu damien duff og ég sagði maggi bíddu, hættusu damien kemur til okkar ekki við til hans. en maggi varð svo óþolinmóður að hann fór að leita að honum en hefði hann bara hlustað á mig þá hefði hann ekki þurft að bíða lengi því damien hringdi í mig og bað mig að fara með sér á vegamót og ég bara ok og fór með honum á vegamót og kenndi honum að dansa en hann var samt eiginlega dálítið leiðinlegur, vinur hans var miklu skemmtilegri. danni mætti svo á vegamót og sagði get this party started og í þeim töluðu orðum reif danny sig úr skyrtunni, vippaði sér upp á borð og dansaði þar á hlíranum fram á morgun, fór svo beint úr bænum upp í powerhorn.
halldór hilmar sást hvergi, ég held að hann hafi verið grátandi einhverstaðar mjö mjö mjö
veit ekki hvað mister brown var að gera, skil hann ekki þessa dagana
leifur gísla var sá arfaslakasti þessa helgina, hann getur ekkert

fimmtudagur, nóvember 10, 2005

Allt í háalofti 

ég vil sjá gunnar hilmar og magnús má hætta í auðnuleysingja-klúbbnum og byrja að æfa með fylki. það yrði gaman að fá þá í árbæinn og ég held að þeir geti vel plömmað sig með fylki næsta sumar.

sjáið svo stjána vald í kastljósinu hérna:
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4270017 og ýtið á Kristján Valdimarsson - mannlegur hljóðgervill

þriðjudagur, nóvember 08, 2005

Hvar er Daði? 







ætla rétt að vona að hann gleymdi ekki svörtu renndu hettupeysunni minni

sunnudagur, nóvember 06, 2005

Afmælið hans Steina feita 

ég setti inn myndir úr afmælinu hans steina feita hérna there you go:
21 árs afmæli steina feita

Ný könnunn 

Finnst þér tónlistin sem kemur á síðunni pirrandi? [49 votes total]

nei (5) 10%
já (9) 18%
já ég hata þetta drasl (23) 47%
nei ég fíla þetta (2) 4%
já ertu fáviti (8) 16%
nei nei þetta er ágætt (2) 4%
alveg sama (0) 0%

okok fólk þolir ekki þessa tónlist. allt í lagi en ég nenni ekki að taka þetta út, mér finnst þetta töff og svo heyrist ekkert í þessu á minni tölvu, veit ekki afhverju. þið verðið bara að dilla ykkur með tónlistinni og hætta þessum derring og hætta að kalla mig fávita

nýja könnunninn er til heiðurs könnuninnar hans sperta, blog.central.is/bertinn, sem spyr hvort maður setur pappír ofan í klósettið áður en maður kúkar. mér finnst það vera sjálfsagt mál að láta pappír fyrst en svo eru víst einhverjir perrar sem fíla það að láta klósettvatnið skvettast upp í rassgatið á manni þegar maður kúkar, oj.
þannig að núna spyr ég, hvort að þú takir ekki smá pappír þegar þú ert búinn að pissa og þurrkir síðustu dropana á tillanum svo að það dropist ekki í nærbuxurnar. mér finnst það einnig vera sjálfsagt mál og gott hreinlæti og hefði ekki dottið það í hug að menn gerðu ekki slíkt. en svo kom það bara í ljós í einhverju partíinu upp í geislanum, þegar einhverjir strákar fóru saman að pissa, því við öldrykkju þá fara strákar saman á klósettið, já eins og stelpur, og pissa í kross. þá var bara einn sem fór að gera grín að hinum sem skeindi á sér typpið og út frá þessu sköpuðust smá umræður og virtust menn ekki alveg vera sammála um þetta

mér finnst þetta nú bara asnalegt. hver vill láta pissið sitt dropast svona í nærbuxurnar og fá pissulykt í þær. maður er bara alinn upp við að gera þetta, ég meina ég var nú að vinna á leikskóla og þar er strákunum kennt að skeina á sér typpið, þannig að ég held að að þeir sem skeini ekki á sér typpið hafi eitthvað farið á mis í uppeldinu sínu.

föstudagur, nóvember 04, 2005

Krjánn Valdó 

halló halló hvað er þetta!!!! ég var að lesa á fotbolti.net um að 6 leikmenn hefðu gert nýjan samning við fylki en nú spyr ég! hvar er krjánn vinur minn valdó??? fær hann ekkert nýjan samning eða vill hann ekki gera samning??? hvað er að gerast með stjána?? that man ætlar hann að fara frá félaginu sem hann elskar? ég er svo aldeilis hlesssa með þetta allt saman


fimmtudagur, nóvember 03, 2005

Auðnuleysingjarnir 

nokkrir félagar mínir hafa stofnað klúbb sem þeir kalla Auðnuleysingjarnir. klúbburinn gengur út á það að gera ekki neitt. já þeir hittast á hverjum degi og hlæja að fólki sem þarf að vinna eða vera í skóla. þeir hittast, borða skyndibitamat og spila pro allan daginn eða gera hvað sem þeim dettur í hug.
þeir sem skipa klúbbinn eru gunnar hilmar, magnús már, raggers brown, albert ingas og daði snorkur.
albert ingas og daði snorkur eru reyndar bara part-time partners þar sem þeir eru að vinna á leikskóla en útaf því að það er svo viðurkennt að verða veikur á leikskólum þá hafa þeir tekið upp þá háttsemi sem þeir kalla lazy-days. þeir taka þá alltaf allavegana tvo daga á viku þar sem þeir tilkynna sig "veika" í vinnunni og mæta á fundi hjá Auðnuleysingjunum. þeir hafa báðir valið sér daginn sem er þeirra special "veikinda dagur" og daði son valdi sér föstudaga sem hann kallar leikja-föstudaga og alberto valdi sér mánudaga sem hann kallar happy-mondays og svo velja þeir einhverja aðra "veikinda daga" eftir hentugleika.
gunnar hilmar er víst líka að reyna að fá vinnu hjá leikskóla svo að hann geti borgað lazyboy stólinn sem hann notar á fundum Auðnuleysingjana því hann er jú formaðurinn og formaðurinn verður að sína gott fordæmi og sitja í lazyboy. gunzinn borðar alltaf dominos pizzu meðan á fundum stendur.
maggi már hefur verið settur í það að smíða borð fyrir Auðnuleysingjana svo að þeir geti allir sitið saman og spilað póker meðan þeir hlæja að fólki. annars gerir hann bara það sem hann vill, skrifa póker bók og skáldsögur eða höstla vini sína með því að kaupa eitthvað cheap og selja þeim það svo dýru verði og nota síðan peninginn til þess að kaupa sér öll nýjustu tækin sem eru á markaðinum.
raggers brown hefur það að sínu mottói að fara eins oft og hann getur að fara til útlanda á milli þess að að mæta á fundi hjá Auðnuleysingjunum því honum finnst svo gaman að vera í útlöndum. stefnan hjá honum er að kaupa sér flatskjá svo hann hafi það ósvikið




þetta var smá djók í boði dooroo en átti ekki að vera illa meint, bara allt saman í gamni því dooroo elskar þessa menn

miðvikudagur, nóvember 02, 2005

OK Fylkir 

nú eru miklar mannabreytingar hjá fylkisliðinu og ég er að pæla í því hvernig þetta lítur allt saman út.
menn sem eru farnir eru:
finnur
gunni þór
valur fannar
viktor
björgólfur
helgi valur
peter tranberg
eric gustafson
láki

svo er náttúrulega raggers brown í útlöndum að reyna komast í lið þannig að þetta telur 9 jafnvel 10 manns og þetta eru stór skörð í leikmannahópinn

nýr þjálfari en enn hafa engir nýjir leikmenn komið en þó er hægt að segja að þrír "gamlir" koma inn aftur eftir meiðsli, óli stígs, sævar og haukur ingi

kannske að núna leyfi þeir ungu strákunum að spreyta sig og skapa lið til framtíðar. maður veit samt að eitthvað verður nú keypt í liðið og má búast við úglendinganýlendu hjá fylki næsta sumar því ekki eru margir feitir bitar eftir á íslenska markaðinum og líklegt að menn leiti út fyrir landsteinana.
já spennandi að sjá hvað gerist

ég ætla að spá að alli muni verða markahæstur, eyjó verði með mest assist, raggi með flestar unnar tæklingar, gústi vinni flesta skallabolta og stjáni með bestu "beckham" sendingarnar í landsbankadeildinni næsta sumar

This page is powered by Blogger. Isn't yours?