One Love <$BlogRSDURL$>
KÖNNUNIN

Hver er besti pókerspilarinn?

Dooroogangster
Maxó níu níu
Gunzinn da sprengja
Homie Q
Raggers sykur sonur
Ívar Baldvinnson aka LoneRanger
Kanoute
Guns3000
Biggit Le BIG
Tommi Óma
Joey BBQ
  Current Results

mánudagur, febrúar 28, 2005

Barnalegur drengurinn 


sunnudagur, febrúar 27, 2005

K plögger 

gærkveldið var magnað. gunzinn sötraði hvítvínið og bb brynja sötraði bjórinn. gunzinn og danni berg reyndu hvað þeir gátu að vera eins og dooroo og drekka trekt en það gekk ekki betur en þeir frussuðu öllu út um allt og danni endaði einn í ælukeppni. svo fórum við danni út á nes í eitthvað salapartý þar sem danni laug að öllum að ég væri bandarískur vinur hans hahahahahahahaha vá hvað það var fyndið maður. allir að tala við mig og voru að reyna að vera svo kurteis ahahaahahaha danni maður. svo fórum við á hverfis og fólkið í salapartýinu borgaði fyrir okkur taxann því allir vilja vera góðir við bandaríska strákinn sem er í heimsókn á íslandi. hef aldrei lent í öðru eins veseni að komast þarna inn og danni fór svo bara á undan mér inn. en svo kom óli lifesaver kalli og hann kann að plögga maður, óli maður. hann sagði bara diddi ég nenni ekki þessu rugli ég ætla að redda okkur hérna inn og svo bara reddaði hann okkur inn á núlleinni, óli maður. ég ætla ekki að uppljóstra hvernig drengurinn fór að því þá fara allir að gera svona og þá er þetta bara búið. innst inni á hverfis mátti maður svo finna kristinn hrafnsson þar sem hann var snargeðveikur að treflast með öllum stelpunum. greyið lísa komst ekki í bæinn greyið greyið stelpan hún er að fara eignast íslandsmet í að drepast og rústast á fylleríum greyið stelpan. ég var bara einn eftir að það lokaði en svo hitti eg einhverja stelpu sem sagðist vera frænka mín og vinkona hennar var edrú og á bíl en þær fóru heim og eg var eftir. svo var eg á nonna aleinn og vissi ekkert hvað eg átti að gera átti engan pening þá hringdi allt í einu þessi edrú stelpa í mig og bauðst til að sækja mig og hún skutlaði mér heim. þetta var fínt kvöld daddi minn baby brother átti einnig heljarinnar skemmtun, var kominn heim kl 2 og drapst í lazy. vaknaði svo kl 6 og fór víst að syngja hástöfum einhver lög sem voru á popptíví, ældi svo í klósettið og stíflaði það og rann svo til á kattarælu og allt var þetta í boði snorrasons

föstudagur, febrúar 25, 2005

www.blog.central.is/mm9 

márinn er byrjaður að blogga for real skoðið það á www.blog.central.is/mm9

gamli márinn tískuman með grifflurnar hefur loksins gert eitthvað á síðuna sína en þetta bara er ekki jafn steikt og ég bjóst við... vonbrigði. þetta er meira svona heimir blogg, ekkert að því en ég bjóst við steik eins og aaahh ég hitti justin í gær og hann sagði bara márinn keep it cool og það er ekkert að því að vera eins og ég eitthvað svona sko, eða ég fór í bæinn í gær maður vá ég sá einhvern kynskipting og sandy baby bara... eitthvað svona sko.
márinn ætlar sér að skrifa pro evo fréttir eins og vænta má af íslandsmeistaranum en hann skrifaði samt ekkert um 7-0 tapið sitt á móti daða í gær.

máranum er margt til lista lagt eins og að dansa ballet, vera meiddur, svindla í pro, hlæja fyndið, tala ensku og svona margt gott og svo má ekki gleyma að hann er eins og justin, hann býr til tónlist. það má heyra eitt lag frá honum alltaf á laugardögum á X-FM 91,9 einhvern tímann kl 12-14 því hann samdi stefið fyrir fotbolti.net þáttinn. márinn segist líka vera höfundur slide to the left slide to right kriss kross lagsins segist fá ágætis stefgjöld út á það eða svona smá vasapening fyrir mánuðinn

máradillarassalagið:
Snoop Dogg Ft. Charlie Wilson & Justin Timberlake - Signs.mp3

fimmtudagur, febrúar 24, 2005

Shit 

tri=7, bak=10, brjóst=5, hlið=10, magi=15, læri=7
ég held að titillinn sé í hættu, ég spái kjartani sigri eða einari...

Massacre 

dooroo er kominn með 50 cent's newest skít The Massacre í hendurnar. kemur út 3. mars. eins og bróðir minn veit þá er ég og 50 eða my homie curtis eins og ég kalla hann, ágætis félagar og hann sendi mér eitt eintak svona í góðravinafíling. ætla að blasta hann í bílnum í nokkra daga og kem svo með update.

lag nr 15 heitir einmitt gunz come out. kannski það standi fyrir gunz come out the closet, veit ekki en gunz er samt kominn í hjónaband með bb brynju. þó er það engin trygging því eins og við vitum var pabbi hans luke í oc hamingjusamlega giftur með 3 börn og labrador en var svo alltaf að hommast í vinnunni. getur líka verið að það standi fyrir gunz come out and play því hann er jú búinn að vera týndur og ekkert spurst til hans. ég sá gunz síðast fyrir nokkrum vikum og þá var hann að vinna við affermingu á keflavíkurflugvelli

mánudagur, febrúar 21, 2005

Locked Up 


föstudagur, febrúar 18, 2005

Fimmtudagsfyllerí 

í gær var árshátíð ms og fóru litlu geislarnir á það en þeir héldu einmitt líka fyrirpartý upp í geisla. planið var að ég og maggi myndum mæta þangað og chilla, horfa á fólk, albert gera sig að fífli og hlæja svo híhíhí.
við mættum ferskir spiluðum auðvitað pro og ég tapaði 5000 kalli því við maggi veðjuðum upp á leikina og byrjuðum á 500kr en svo fór hann fór allt í einu að vinna mig og sagði svo alltaf double or nothing og að lokum var þetta komið upp í 5000 kall. baldvinns þegiðu
eins og márinn fær allt upp í hendurnar þá var þetta kvöld engin undartekning og einhver gaur labbaði uppað honum og gaf honum bara miða á ballið, hábeinn heppni. ég sem ætlaði að keppa við hábein fram á nótt í double or nothing og hirða allan peningin hans en hann er alltaf svo heppinn og slapp frá því.
dooroo segir við skulum passa okkur á ragga hér framvegis. hann réðst á stelpu, hrinti henni í gólfið og sparkaði svo góðu sparki eins og alvöru hafsent beint í smettið á henni og allt útaf því að hún slökkti á playstation þegar hann var að keppa. svo reif hann kjaft við aðra stelpu og þrykkti henni á einhvern vegg og ég veit ekki hvað. ég hélt alltaf að þetta eðli væri komið úr bardagajakkanum en hann var ekkert í honum þannig að þetta er greinilega bara raggers eðlið og ég er orðinn hræddur
knud drakk sá og sigraði og drapst áður en hann komst á ballið gott.
eyjólfur héðinsson hann er góður. mætti eiturhress inn á ballið kl 00:30, kl 01:00 sendi hann sms: hitti höllu er að fara heim nenniru að skutlast?
ég er ekki frá því að ég sakni þessara tíma, maður fer að kalla þá gömlu góðu. stemning að fara á þessi böll, drekka sig mökkölvaðan á mettíma og vera svo á ballinu í svona tvo tíma og fara þá bara heim snargeðveikur. aaahhh ég og greddi vorum góðir í þessum pakka maður, hvar er greddi, ég sakna gredda.
svo má alveg segja frá því að heimir fór á fyllerí í gær fimmtudag og fór ekki á ball heldur í bæinn

fimmtudagur, febrúar 17, 2005

O-town hvað er það 

gamli márinn tekinn og pakkaður en við erum jú að tala um íslandsmeistarann. dooroo mætti í o-town í einvígi uppí 3. dooroo hélt sig við chelsea en mm9 var arsenal:
chelsea 2 arsenal 3
chelsea 5 arsenal 2
chelsea 5 arsenal 3
chelsea 0 arsenal 2
chelsea 2 arsenal 1
dooroo vann íslandsmeistarann svona frekar létt. örvæntingarfull tilraun márans til þess að taka athyglina frá tapinu sínu þegar hann fór að tala um 13 lesbíur var mjög fyndin en það virkaði lítið og meistarinn sat eftir með sárt ennið

lagið í spilun hjá dooroo: akon - locked up, takið eftir hækkið í botn þetta er geðveikt lag

miðvikudagur, febrúar 16, 2005

On his way up 

Gunnar Hilmar Kristinsson er genginn til liðs við Keflavík frá ÍR en í dag gengu félagaskipti hans í gegn. Gunnar er fyrrum unglingalandsliðsmaður en hann æfði einnig með 1.deildarliði HK fyrir skömmu, úrvalsdeildarlið Keflavíkur varð þó fyrir valinu.
Gunnar er tvítugur örvfættur miðjumaður sem er uppalinn hjá ÍR. Hann lék fyrst með meistaraflokki félagsins sumarið 2001 en í fyrrasumar lék hann 10 leiki með liðinu og skoraði eitt mark, hann var meiddur hluta af sumrinu.

við á dooroo óskum gunnari hilmari hjartanlega til hamingju og vonum að hann standi sig á nýjum vettvangi og standist pressuna sem dooroo mun setja á hann en hún mun vera að gunzinn þarf að vera valinn efnilegasti maður íslandsmótsins á komandi sumri annars var þetta rugl move fyrir gunzinn að dooroo mati

Þeir falla eins og spilaborgir 

allir sterkir heimavellir falla einhvern tímann, við þekkjum þetta með eins og t.d. gunztown og highbury. dooroo(chelsea) og raggers(brazil) tóku seríu í pro uppí 4 í house of pain. raggers byrjaði strax með sálfræðina ég hef ALDREI tapað í house of pain. þannig enduðu leikar:
chelsea 3 brazil 2
chelsea 0 brazil 1
chelsea 4 brazil 1
chelsea 2 brazil 3
chelsea 2 brazil 5
chelsea 3 brazil 1
þarna var staðan 3-3 í leikjum og raggers vildi þá hætta og sagðist vera að fara sofa og fór svo að syngja: do you have a fresh pair of panties on, veit ekki hvað hann var að meina. dooroo hlustaði ekki á svona væl og heimtaði úrslitaleik.
chelsea 1 brazil 0
staðreyndin: raggers var sigraður í fyrsta skipti á heimavelli, house of pain. segið svo að dooroo hafi ekki power

keypti inneign fyrir 500kr hringdi í heimi í svona 2 mín, ragga í svona 1 mín og daða í svona 1 mín, þá sendi kellingin mér: inneign thin er minni en 100 kronur sdklgho24309gqgnw3roætj480 243tr2435t34tjwqrnotv n KJAFTÆÐI!!!!!!!!!

litla systir var að koma frá london og gaf mér bol sem á stóð: my sister went to london and all i got was this lousy t-shirt. það var fallegt af henni


Daði says:
þegar við vorum ekki í kringlunni í dag vorum við í twister í stofunni

þriðjudagur, febrúar 15, 2005

Sannur vinur #2 

þar sem ég er enn fatlaður og vitlaus gat ég ekki farið að þrífa í dag og hringdi því í heimi sanna vin og hann var alveg til í að gera þetta fyrir mig en var samt ekki viss hvenær hann væri búinn í vinnunni. þannig að ég hringdi í raggers til að tékka á honum og hann sagði nei ég er að fara að sofa og ég bara ok. þannig að ég þurfti að treysta á heimi þótt að ég vissi ekki hvort hann næði þessu. en svo hringdi raggers og sagði ok frændi ég skal gera þetta fyrir þig því ég elska þig of mikið og get ekki sagt nei við þig. þannig að þessu var reddað og raggers er því sannur vinur #2 og vann sér inn pening í leiðinni.

leiðinlegt samt fyrir raggers að þegar þrifum var lokið fórum við í doorooland í pro og ég var chelsea og hann brazil og leikar fóru eftirfarandi:
chelsea 3 brazil 1
chelsea 6 brazil 3

svo förum við ábyggilega í pro í kvöld í house of pain og þá náttúrulega er raggers sigurstranglegri því hann verður á heimavelli

en hvernig er það dettur fólki ekki lengur í hug að commenta i mean like moyes why don't you make any comment i mean i know albert and he is the son of inge so...

mánudagur, febrúar 14, 2005

Grindahlaup á skrifstofunni 

ég er alveg crazy hérna heima nýbúinn að berja snoop dogg í buff og hann dó því ég henti honum út um glugga. mér fannst samt snoop of léttur og vann hann í fyrstu tilraun. erfiðasti gaurinn sem ég keppti var bara einhver lólæf gaur sem heitir chiang og ég var að verða geðveikur hérna að því hann náði alltaf að kýla mig á undan og ég drapst alltaf. ég er sko að tala um def jam leikinn í ps2. þetta er algjör snilldarleikur, maður fær að slást við alla krasí ass rapparana og svo er geggjuð tónlist í leiknum, leikurinn fær bara 10 af 10

eins og það sé ekki nóg af fólki að blogga og bulla eitthvað um eitthvað frat, þá voru tveir að bætast í hópinn heimir þór aka homie q og magnús már aka márinn voru að opna svona blog.central síðu. þessi vika er alveg brjáluð í blogginu höfðu áður krjáni og albert byrjað í þessu kjaftæði og núna hinir tveir. það er gaman að þessu það eru allir brjálaðir hérna vííííííúúúúúúíííííhhaaa. geri fastlega ráð fyrir að hey-jó-baby héðins og daddi baby brother fari að blogga innan tveggja daga

ég er svo að pæla í að fara með knúti, daða og magga til costa del sol í sumar 3. ágúst, það væri stemmning. veit samt að knútur og daði myndu taka allar stelpurnar, svo heitir gaurar maður. knútur er með þær hægri vinstri núna og velur sér bara eins og hann vill og daddi minn hann er eitthvað byrjaður að sofa hjá eins og brjálæðingur. en ég held að allir séu velkomnir með okkur til costa, bara segja það og þú ert með skiluru

David Moyes sá að sér 

pabbi hans alberts hringdi í david moyes og sagði honum að dooroo væri ekki par hrifin af athugasemdum hans um gallas/beattie málið og benti moyes einnig á að dooroo hefði kallað hann hálfvita og þá varð moyes að vonum brugðið og varð tilneyddur til að athuga málið aftur og sá þá hvílíkan asnaskap james beattie hafði gert.
"Eftir að hafa haft tíma til að hugsa um þetta, og hlustað á dooroo og inge born þá ætla ég að koma því á hreint að ég tel að brottvísun James Beattie hafi verið rétt ákvörðun. James er hálfviti og honum verður núna refsað eins og venja er hjá klúbbnum eftir slík athæfi."

sjáið hvað hann er miður sín


segið svo að dooroo hafi ekki power

sunnudagur, febrúar 13, 2005

Hálfviti 

james beattie í gær: hmm best að ég hlaupi aftan að gallas og skalla hann í hausinn, það sér það ábyggilega enginn. er hann hálfviti þvílíkur fáviti þetta var bara það asnalegasta sem ég hef séð. það sáu allir hversu fáránlegt þetta var en nei nei núna kemur david moyes og fer að segja að þetta hafi ekki verið neitt er hann hálfviti líka.
"Ég taldi þetta vera snertingu á bakið aðallega og tel enn ekki að þetta hafi verið brottvísun. Var þetta ekki einhver að hlaupa með höfuðið niður? Hver er skilgreiningin að skalla? Hann hljóp með höfuðið neðarlega og hljóp í bakið á honum."
ok david moyes þú ert hálfviti albert segðu pabba þínum að hringja í david moyes og segja honum að hann sé hálfviti.

laugardagur, febrúar 12, 2005

Fáið ykkur Skype 

náið í skype, með skype er hægt að tala frítt saman á netinu og allt voða gaman gaman. svo virðist vera sem það sé ekki lengur töff að skrifa á netinu eins og nota msn og blogga eins og sjensinnbensinn er að gera, hringir bara inn á bloggið og talar á það og í staðinn fyrir msn notaru bara skype og talar. linkurinn fyrir neðan fer beint með ykkur að downloada skype, mjög einfalt.

http://www.skype.com/products/skype/windows/?autoload=true

föstudagur, febrúar 11, 2005

Besti vinur hennar Lísu 





lísa ég er með krónískt nefbrot því ég hef nefbrotnað svo oft, harður boxari. þegar að eyjólfur héðinsson nefbraut mig seinast nennti ég ekki að láta laga það þannig að núna er ég með nefið gróið skakkt, ekki gott mál. getur tékkað á því þegar ég mæti í vinnuna eftir svona viku eða eitthvað

Svo það sé á hreinu 

sko ef maður fer í speglun þá eru gerð svona tvo lítil göt í hnéð á manni og þar er stungið inn einhverri myndavél og einhverju drasli til þess að laga það sem þarf að laga. eftir svona aðgerð þá bólgnar hnéð á manni óhemjumikið upp af vökva og ógeði og maður getur eiginlega ekki labbað og það er frekar sárt að nota löppina eitthvað. þetta virðist vera fyrir ofan skilning sumra sem halda bara að maður fari í speglun og hlaupi svo bara út af spítalanum. svo einfalt er það bara ekki og þarf ég til dæmis að vera heima í viku núna til þess að jafna mig.

fólk þið ykkar sem ég hringdi í og nenntuð ekki að vinna fyrir mig í skitnar 40 mín(sumir höfðu afsakanir) og fá 2500kr fyrir, þið eruð aular. ég hefði auðvitað komið með en bara ekki getað gert neitt. hringdi svo í heimi og hann sagði ekkert mál STRAX, sannur vinur

Ný síða hölt hóra.blog.central eða eitthvað 

dooroo er dálítið ánægður í hjartanu sínu núna því það lítur út fyrir að meiðslin hafi ekki verið jafn alvarleg og leit út fyrir í fyrstu. krossböndin eru í lagi samt aðeins teygð til, liðþófin er heill, einhverjar skemmdir í brjóskinu undir hnéskelinni sem gæti verið eitthvað þrálátt upp á fótboltann að gera en við skulum bara vona ekki. ætti að byrja að æfa fótbolta eftir 3 vikur

annars líður mér bara vel hérna. kominn í frí úr vinnunni sem ég byrjaði í á mánudaginn, aðeins að slaka á, búin að vera erfið vika. verð bara hérna heima chillandi í dooroolandi í viku eða svo og þarf að fá einhverjar heimsóknir og spila pro. vill fá gunzann, íslandsmeistarann, knút, daða, raggers, albert, ívar, joey my man, og alla þá sem þora í pro hér í doorooland, kristinn gæti orðið nýr andstæðingur, þorir hann það er spurning. annars eru allir velkomnir til dooroo það er ekki vandamál.

10.000 heimsóknir er góður skítur

ef einhver vill vinna sér inn 5000kr þá skal hann hafa samband við dooroo 8962774, fyrstur kemur fyrstur fær

þriðjudagur, febrúar 08, 2005

Í kjölfar góðra frétta koma auðvitað slæmar fréttir 

jebb í dag hringdi fylkislæknirinn í mig "heyrðu vinur skaddað krossband, rifin liðþófi, hnéskelin skökk, speglun á fimmtudaginn sjáum svo hvað setur"
jájájájája ok þetta eru gríðarlega upplífgandi fréttir í skammdeginu. eins gott að ég tók leikskólann því annars hefði ég verið rekinn úr ruslinu eins og gert var við knút þegar hann meiddist. við skulum sjá til 1,2,3,4,5,6... eða eitthvað vikur frá í meiðslum. hversu óheppin getur einn maður verið alltaf í meiðslum, á ekki fram af manni að ganga.

ég og eyjólfur héðinsson förum að æfa jóga og hættum að meiðast.

talandi um eyjó þá er hann aumingi. búinn að tala um fyllerí og kellingar seinustu 23 helgarnar og loksins dettur hann í það seinustu helgi en lætur svo höllu kasólétta sækja sig kl 1:30 því honum var svo illt í tánni pösse. bragi er meiri maður en eyjólfur

talandi um seinustu helgi þá var raggers frændi mættur niðri í bæ í bardagajakkanum sínum og með bardagahetjunni alberti og þá sagði ég hell no og lét mig hverfa því þeir kunna sko að dansa ef þið vitið hvað ég er að tala um. er ekki frá því að þessar 6 líkamsárásir sem áttu sér stað niðri í bæ um helgina megi rekja á einn eða annan hátt til þessara tveggja pilta

fönkaður dópisti - súperhórur = funkdoobiest - superhoes. krullujárnið er mitt

föstudagur, febrúar 04, 2005

Góðar fréttir og Gunzinn er farinn ok 

já það eru bara góðar fréttir á dooroo núna.

masta ace í kvöld ó baby þvílílt stuð dooroo, márinn og baby boy knútur mæta á svæðið, látið okkur í friði í kvöld, engar eiginhandaráritanir

kallinn hann dooroo náði SAT prófinu, 910 stig ekkert sérstök einkunn kannski en samt sem áður toppaði márann og gunzann hehe.

hvað haldiði??? jájájájájájájájá ég fann bíllyklana eða knútur og daddi fundu lyklana, ég gaf þeim endaþarmsleikingu í staðinn. lyklarnir voru neðst niðri í stigaganginum í geislanum og knútur sá þá í dag liggjandi þarna fyrir allra manna augum. þegar knútur sagði mér frá þessu, þá fékk ég eilítið flassbakk frá laugardagsblackoutkvöldsógeðinu eftirminnilega og fór að muna eftir því þegar ég henti lyklunum þarna niður í bræðisskasti út af því að strákarnir hleyptu mér ekki inn og létu mig sofa á stigaganginum, eða ég held ég hafi gert það, man ekki neitt.

þurfti að ákveða í dag fyrir kl 15:40 hvaða vinnu ég ætlaði að taka, leikskólann eða ruslið. ákvað á seinustu stundu að taka leikskólastarfið, við skulum sjá til hvort þetta hafi verið rétt ákvörðun. ég er bara í þessu fram að sumri en veit samt að ég er að missa þarna af allavegana 100.000kr fyrst ég tók fóstruna á þetta í staðinn fyrir haugana en people peningar eru ekki allt!

raggers volume 3 er komið í hús. 300 kr stk, 3 á 1000kr ath takmarkað upplag.

sá þrjú símanúmer sem ég kannast ekki við í símanum mínum í dag, eddi, hrabba og hugbjört, þekki ekkert af þessum nöfnum. þetta staðfestir grun minn að leigubílstjórinn hafi ætlað sér að eigna sér símann og verið byrjaður að nota hann og festa inn númer, that bastard. auli ég fann þig og símann hahahahahaha faggit.
en kannski samt setti ég sjálfur þessi númer inn þarna á laugardagsblackoutkvöldsógeðinu eftirminnilega því ég auðvitað man ekki neitt.

lagið í spilun hjá dooroo masta ace - good ol' lovin

fimmtudagur, febrúar 03, 2005

Hvað viljum við gera? 

hvað á ég að gera? fyrir 2 dögum var ég atvinnulaus og í atvinnuleit. núna er ég kominn með tvær vinnur og veit ekki hvora ég á að taka.

1 vinnan er á leikskóla. 9-5 alla daga og léleg laun, samt matur í allar máltíðir. maður vinnur með börn sem er náttúrulega skemmtilegt og er bæði úti og inni

2 vinnan er í ruslinu sem er einmitt tískuvinnan í dag. 7-14:30 alla daga kannski styttra á föstudögum, mun betri laun en maður er alltaf úti hvernig sem viðrar og ábygglegra leiðinlegra en leikskólinn

dooroo spyr því ykkur fallega fólk hvað á ég að gera???



lagið í spilun hjá dooroo snoop dogg og pharrell - let's get blown

Dogg 

ég var á meet the fockers áðan, fersk mynd ágætis mynd get alveg sagt það, dustin kom sterkur inn og den niroinn var góður. veit samt ekki alveg hvor er betri þarf eiginlega að horfa á meet the parents aftur og dæma svo en góð mynd meet the fockers jájájá.

hver vill ekki fara á snoop dogg tónleika hhmmm veit ekki. ég vil allavegana fara og þó að ég sé atvinnulaus og er að vakna svona við 3 leytið flesta daga þá er ég alveg til í að fara að vakna kl 7 og hlusta á kiss fm til 10 og gæti þá bara lagt mig til kl 2 og vakna þá og hlusta á brynjar má, besta vin óla kalla og hringja eins og brjálæðingur og reyna að vinna miða. það væri stemmning snoop dogg


en fyrst að snoop dogg tónleikar eru ekki pottþéttir í minni scheduele þá er ég búinn að festa inn tónleika næsta föstudag á nasa þegar masta ace ætlar að blasta pleisið. hlakkar gríðarlega til, masta ace átti eina bestu plötu síðasta árs, a long hot summer og ættu allir að fjárfesta í henni. kostar einungis 1000kr inn sem hentar mér vel í mínu peningaleysi og ég og knútur mætum brjálaðir á svæðið

raggers segir að ég sé leiðinlegur á msn, raggers er bara leiðinlegur í face to face, þykist ekki þekkja mann

það sem ég var að heyra er að hey-jó-baby-héðins er að fara að skralla næstu helgi víííúúúííííhhhaa sagði hann. hann verður samt að fara rólega, kellingarnar eru alltaf brjálaðar í hann og barnið er á næsta leyti og ég held að hallan yrði ekki ánægð ef hún myndi heyra eitthvað slæmt slúður um héðinn, það myndi alveg fara með hormónana sem gæti þá eitthvað farið illa með barnið í mallanum


lagið í spilun hjá dooroo masta ace - brooklyn masala

miðvikudagur, febrúar 02, 2005

Síminn er minn 

þegar ég týndi símanum þarna um daginn þá ég hélt ég nú að öll von væri úti því þessi bílstjóri hafði greinilega enga áætlun um að skila honum aftur. en þar sem ég er svo sniðugur (ég er mjög sniðugur að eðlisfari) þá hringdi ég í visa og spurði hvort þeir gætu séð synjanir á kortið jafnt og venjulega færslur, viti menn þeir geta séð það. ég spurði því hvort það sæust einhverjar upplýsingar um posann sem kortinu var rennt í gegn og þá kom í ljós "bsr nr 50 og eitthvað". YES.
ég hringdi niður á bsr og fékk símanúmerið hjá gaurnum sem var skráður fyrir bílnum. hringdi í hann en þá var það ekki hann sem var að keyra heldur var það annar gaur sem keyrði fyrir hann um helgina, hann sagðist ætla að hringja í strákinn og spurja hann en svo hringdi þessi eigandi bílsins aftur í mig og sagði að hann næði ekki í gæjann og hann hefði farið út á land og kæmi ekki aftur fyrr en á föstudaginn en lét mig samt fá símanúmerið hjá honum. ég hringdi svo í þennan gæja þennan þjóf í dag og kynnti mig og sagði svo "heyrðu vinur ég tók taxa hjá þér um hel...." "já já já ert þú gaurinn sem á símann ég var einmitt að fara að koma með hann til þín, þú mátt bara fá hann núna ef þú vilt" je ræd vinur einmitt. ég sagði "ég kem bara núna hvað skulda ég þér?" "4000 kall" ég bara ha??? venjulega kostar bíll upp í geisla aðeins 2200kr. "já þú varst ekkert viss um hvert þú vildir fara lést mig keyra þig upp í kópavog og eitthvað". getur vel verið að hann hafi verið að hössla mig en ég gat nú ekkert verið að véfengja manninn þar sem ég man ekki neitt og var að auki feginn að finna símann þannig að ég borgaði bara þjófnum 4000 kall fyrir að skila símanum mínum aftur og ég er núna feginn því núna er það bara bíllykillinn sem er eftir og hann vonandi skilar sér á næstu 2 dögum vonandi

Albertshornið 


...þegar albert vildi láta bæta við 2 tökkum í bílinn hjá sér... takki nr 1 átti semsagt að vera u-beygju takki eða (u-turn) eins og fagmenninrnir segja. þannig að þegar albert ætlar að taka u beygju langar hann að láta bílinn fyrir aftan sig vita svo hann klessi örugglega ekki aftan á sig því að hefur albert nokkrum sinnum lent í því að vera á ljósum og bíllinn fyrir framan hann tekur u beygju eða (u-turn) og ingassinn klessti næstum því á hann.

takki nr 2 átti að vera spurningarmerki eða svona ? merki. tilgangurinn með því væri semsagt að ef albert væri til dæmis á hringtorgi og það væri bíll í hringtorginu þá gæti albert ýtt á takkann og gefið spurningarmerki (þ.e.a.s. ef að hinn bíllinn hefði ekki gefið stefnuljós um hvert hann ætlaði) og semsagt þá mundi hinn gaurinn sjá spurningarmerkið og mundi láta albert vita hvort hann ætlaði út á næstu beygju eða ætlaði að halda áfram í hringtorginu... og svo er náttúrulega hægt að finna fullt af dæmum sem væri hægt að nota þennan takka.

þriðjudagur, febrúar 01, 2005

Týnið öllu sem er hægt, það er best 

maður er að fara illa útúr þessum fylleríum, nú síðast í afmælinu hennar hebu þá gjörsamlega rústaðist ég og núna er ég bara skipsflak.
kvöldið byrjaði rólega, eyjó héðins skutlaði mér á roadhouse í afmælið hennar hebu þar sem veigar voru í boði. þar sem ég átti ekki krónu þá ákvað ég bara að vera bara fljótur að hella í mig því eins og venjan er í svona afmælum þá klárast alltaf allt áfengið strax en það bara gerðist ekki þarna. í staðinn fyrir að hægja á mér í drykkjunni því ég var búinn með þó nokkuð mikið þá bara hélt ég áfram, að lokum þurfti ég að standa upp, hlaupa inn á klósett og æla. þrátt fyrir æluna hélt ég áfram að drekka. þegar kl var orðin svona 12 vildi ómar að ég kæmi með þeim á brodway en ég sagðist ekki eiga neinn pening en hann sagðist bara borga leigubílinn og redda mér svo inn. þarna byrjaði það sem við getum kallað viðurstyggðin eða bara... blackout... ég var allt í einu staddur inn á broadway með andreu, lenti í einhverju böggi við einhvern gaur, man ekkert útafhverju og ég held að hann hafi kýlt mig eða ýtt mér og ég datt í gólfið... blackout... ég er kominn útaf af broadway og andrea er með mér, fyrir tilviljun sjáum við albert ingas sem er að sækja tinnu sína og við fáum far með honum... blackout... ég er í röðinni á prikinu með knúti og heimir kemur og joinar okkur. förum inn og ég kaupi mér bjór en það er ekki heimild á kortinu svo að heimir býður... blackout... ég er inn á hverfis á borði með sigga helga mínum gamla leikfimikennara og félaga, hann er ekki að spara kortið sitt og dælir í mig áfengi... blackout... ég er einhverstaðar úti að elta einhverja stelpu og hún segir við mig hættu að elta mig þú ert alltof fullur... blackout... leigubílstjóri vekur mig og ég er í leigubíl fyrir utan geislann um kl 7 , ég á að borga og rétti honum kortið mitt en svo furðulega vildi til að það var engin heimild og hann tók því símann minn... blackout... kl er um 10:30 og ég er að berja á hurðina á geislanum og knútur opnar fyrir mér, ég fer beint upp í rúm og sofna eins og steinn. þetta er það eina sem man af öllu kvöldinu og það er frekar ógeðsleg tilfinning. þegar ég vaknaði svo daginn eftir þá fattaði ég að ég var ekki með bíllyklana mína, ég hafði í einhverri gríðarlegri heimsku tekið þá með mér í bæinn og auðvitað týnt þeim eins og ástandið var á mér.

eins og staðan er í dag á ég enga varalykla og þess vegna er bíllinn minn læstur fyrir utan geislann og ég á engan pening til þess að opna hann og skipta um læsingu og fá nýja lykla. ég er því bíllaus og hef því gist hérna í geislanum síðastliðnar 3 nætur.

ég hringdi svo niður á bsr því leigubílstjórinn sagðist ætla fara með símann þangað en þar er enginn sími og þar fæ ég bara þau svör að ég sé í vondum málum því ég hef engar upplýsingar um bílstjórann, hvorki nafn, taxanúmerið á bílnum eða bílnúmerið

þetta er orðin svo mikil fjárhagsleg byrgði fyrir mig að drekka að maður ætti kannski bara að fara að hætta þessu. ég lendi alltaf í einhverju veseni eða týni einhverju, í fljótu bragði þegar ég hugsa um það sem ég hef týnt þá gæti ég nefnt hluti eins og:
dýrt g-shock úr sem ég fékk í fermingargjöf
flauelsjakki
gallabuxur
adidas skór sem ég hafði notað 2 sinnum
tunga úr einum skó
derhúfa sem lísa reyndar týndi fyrir mig
3 sólgleraugu
húfa
sími sem ég keypti á föstudegi og týndi á laugardagsfylleríi daginn eftir. mánudeginum eftir það keypti ég mér nýjan síma og hann brotnaði einhvern tímann á fylleríi og það kostaði 6000kr að gera við hann og núna er þessi sami sími einhver staðar hjá þessum leigubílstjóra sem hefur greinilega ákveðið að hirða hann sjálfur
og það sem ég týni alltaf eru vinir mínir.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?