One Love <$BlogRSDURL$>
KÖNNUNIN

Hver er besti pókerspilarinn?

Dooroogangster
Maxó níu níu
Gunzinn da sprengja
Homie Q
Raggers sykur sonur
Ívar Baldvinnson aka LoneRanger
Kanoute
Guns3000
Biggit Le BIG
Tommi Óma
Joey BBQ
  Current Results

fimmtudagur, desember 29, 2005

London baby yeah 

já desember er svo sannarlega tími til þess að blogga... eða ekki. ég hef ekki gert neitt annað en að sofa, éta, horfa á video og vera í football manager úúúúúffffffff og þetta er alveg búið að vera gaman.
það héldu allir að ég væri að fara til london um áramótin en sannleikurinn er sá að ég var ekkert að fara til london þetta var bara hugmynd sem drapst svo. en viti menn, gaman að hafa svona en, að ég var bara í tjilli í gær og hringir ekki sandra elskan í mig og segir heyrðu diddi við getum fengið flugmiða til london á 3000 kall og ég alveg ha hvað ertu að tala um kona 3000 kall? já nei eða 3000 og eitthvað segir sandra og ég bara ha 3000 og eitthvað, hvað ertu að tala um kelling?? hún segir já ok svona 4000 kall. ég segi sandra mín hvað ertu að bulla ég skil þig ekki núna hvar ætlaru að fá svona flugmiða þú hlýtur að þurfa að gera eitthvað til þess að fá hann??? og hún svaraði já við þurfum að hringja inn og syngja og segja svo eitthvað lucky number og þá sagði ég æi sandra gleymdu þessu þetta er bara kjaftæði. þá segir hún bara neeeiiiii ég er að djóka við þurfum bara að panta þetta og miðarnir eru okkar, ég er að horfa á þetta hérna fyrir framan mig í tölvunni.
við náttúrulega keyptum svo bara þessa miða og þurfum að borga 8278kr á mann. ég er alveg sáttur með kelluna mína núna því ég er að fara til london baby á morgun íííííííhhhaaaaaaaaaa. það verður farið á leik chelsea - birmingham á laugardaginn svo á ég miða á arsenal - manchester, spurning hvort maður ætti að nýta sér hann hhmmm?? svo verður bara verslað og verslað og tjillað og tjillað jess

fór í bíó í gær á chronicles of narnia og ég verð að segja að ég varð fyir vonbrigðum. hún var ekkert sérstök, það á ekki að segja að hún sé eins og lord of the rings ef hún er það ekkert því þá fer maður á hana með svo miklar væntingar og auðvitað stóðst hún ekkert undir slíkum væntingum pfffff. þetta voru einhverjir krakkar sem gátu ekki neitt og svo í næsta atriði þá voru þau bara orðinn hermenn að berjast við skrímsli, ég var ekkert sáttur með þetta.
þetta er meira svona barnamynd eins og sást í gær en það var svona 3 ára stelpa beint fyrir aftan okkur á 11 sýningu. pabbinn þurfti að þýða allt fyrir henni því hún skildi ekki neitt og var alltaf að spurja pabbi hvað var hún að segja eða hihihi ljónið getur talað hvað var það að segja pabbi??? eins gott að ég róaði albert niður, því hann ætlaði í litlu stelpuna í hléi því hann var orðinn svo pirraður, fóstran sjálf. hann sagði ef þessi helv.... stelpa fer ekki að halda kjafti þá næ ég í teip og teipa fyrir kjaftinn á henni eins og ég geri í leikskólanum, já ok albert alveg rólegur.

svo ekki í gær heldur hinn fór ég á greenstreet hooligans og hún var góð. brjáluð mynd, gaurar sem hafa það að áhugamáli að slást og eru bara klikkaðir. ég er einmitt á leið þarna í geðveikina, london baby yeah. west ham á meira segja heimaleik á móti chelsea en en ég er ekki viss um að ég myndi þora á hann eftir þessa mynd shit


lagið í spilun clash - london calling

laugardagur, desember 24, 2005

Gleðileg jól allir saman frá mér one love

föstudagur, desember 16, 2005

Verður sett heimsmet í kvöld? 

sælt veri fólkið og til hamingju með að vera búin í prófum þið sem eruð búin. ég er ekki búinn en ég ætla ekki að taka próf þannig að kannski er ég bara búinn ok ég er búinn

eyjó er að meika það þessa dagana. hann segist vera að finna sig í lögfræðinni, ég vildi að ég gæti fundið sjálfan mig líka, ég veit ekkert hver ég er. eyjó var líka valinn til að mæta á æfingar hjá u21 landsliðinu um helgina og það er auðvitað gott hjá honum en það kom nú samt ekkert á óvart. aumingja strákurinn er samt brákaður á ristinni og getur örugglega ekki verið með og auk þess er hann veikur (vá kemur á óvart) hann og kristján valdimarsson son eru veikustu menn sem ég þekki. þeir eru alltaf veikir svo lélegir gaurar, ættu fá sér nýtt ónæmiskerfi.

ef maður segist vera hættur í fótbolta og segir að fótbolti sé leiðinlegur og maður er búinn að kaupa sér fæðubótaefni fyrir 30 þús og ætlar að byrja að lyfta og verða massi og ná að lyfta 120kg í bekk á tveim mánuðum í staðinn fyrir fótbolta þá er maður valinn í u21 landsliðið en ef maður fer út í reynslu hjá porto sem vann meistaradeildina fyrir tveimur árum og ætlar að verða næsti ricardo carvahlo þá kemst maður ekki í u21 landsliðið

mig draumdi draum í nótt. eina sem ég man samt að ég hitti nicolas cage. við vorum að borða saman og ég sagði hey i was playing poker before i came here and the guys where tellin me about nicolas cage hand, do you know about it? nicolas cage svaraði yeah i hvave og þá spurði ég what cards is it again i can't remember og þá sagði hann it's when you have one slut card in your hand þá sagði ég what? og hann yeah the queen is the slut so when you have one queen in hand og ég sagði ok nickie i understand

hver er daði??? ég veit það ekki
hver er knútur??? ég veit það ekki

muniði einu sinni í gamla daga þá var alltaf svona lúðralæti um alla reykjavík en þá voru þetta almannavarnir eða eitthvað muniði það var alltaf að setja þessa lúðra af stað til að athuga hvort þeir virkuðu. já ég man þetta bara núna

fimmtudagur, desember 15, 2005

Setning dagins 



poker players have a lot of different nicknames for a lot of differents hands. Theres a new nickname for a ace-king, they're callin it the anna kournikova because it looks good but it never wins


mánudagur, desember 12, 2005

Maxo rollin rollin 

langt síðan ég bloggaði síðast ég er bara að verða eins og spertinn

ég var að hlaupa úti með raggers frænda um daginn og við sáum stjörnuhrap. raggers óskaði sér mikla peninga en ég óskaði mér að ég myndi verða viðstaddur þegar maxie nine maggi márinn myndi drekka í fyrsta skipti. vonandi að það fari að gerast bráðum. ég held að allir vilji sjá maxó verða fullann shit það yrði rosalegt. ég legg til að albert haldi partý næstu helgi og maggi verður heiðursgestur, partýið mun svo heita maxó nine's virgins night out. auðvitað þarf maggi ekki að borga neitt fyrir sig þetta kvöld, nei höfum það betra hann fær að drekka ókeypis fram að áramótum því það borga allir fyrir magga og hann má ráða alveg hvað hann vill drekka bara nefna það, það verður keypt fyrir maxó, hvað sem er. ég held samt að það séu meiri líkur á að trinidad tobago vinni HM heldur en að þetta gerist en við skulum öll biðja saman bænirnar okkar og biðja guð um að maggi verði fullur næstu helgi hahahahahahahahahahaha ...líklegt

en talandi um að vera úti með raggers frænda hann bauð mér að fara með sér til kanaríeyja 22.des í tvær vikur frítt en ég sagði æ æ æ raggers ég kemst ekki ég er að fara til london. svona er þetta en ég og frændi værum nú samt verið flottir saman á kanarí no doubt


miðvikudagur, desember 07, 2005

Spurning fyrir ykkur 

þú ert staddur einn út í sjoppu og sérð geðveika gellu. þú labbar upp að henni og fyrsta sem þú segir við hana er hvað hún sé vel vaxin og geðveikt flott og spyrð hvort hún sé alltaf í líkamsrækt, svo stenduru og ert að skoða á henni rassinn eins og ekkert sé...

hvort þarf maður að vera klikkaður eða bara ófeiminn til að gera þetta???

svariði í comments og engin töffarasvör


mánudagur, desember 05, 2005

Give it up for Jay-Z 

ég var að hlusta á black album áðan og fattaði að Jay-Z átti afmæli í gær, þegar mamma hans segir þarna sean carter was born on desember 4th weighin in at 10 pounds 8 ounces my fourth child and the only one who gave me no pain at birth then i knew he was a special one eða eitthvað svoleiðis.

hann er flottur JAY-Z töffari af guðs náð. ég held að hann sé orðinn 34 ára sem er nú ekkert mikið og ætti að eiga nóg eftir en hann segist samt vera hættur í bransanum, ég trúi því ekki. hann þarf allavegana ekki að hafa áhyggjur af peningum þessi maður ég get alveg sagt ykkur það. núna er hann örugglega bara skítþunnur með beyonce á einhverri hawai eyju eftir að hafa haldið einhverja massíva afmælis veislu um helgina sem kostaði hann svona 500 miljónir en honum er alveg sama því hann er svo þunnur og ef hann vantar peninga þá bara gefur hann út einn disk eða selur eitt úrið sitt og þá er hann settled.

fimmtudagur, desember 01, 2005

Bíllinn er besti vinur mannsins 

vinir mínir vita nú flestir hvað ég er alltaf heppinn í bílamálum. já þá ætla ég að bæta en einni rósinni í hnappagatið í dag!! bíllinn minn dó á mánudaginn en eftir langar og strangar andvökunætur á bílaspítalanum var hann endurlífgaður í dag og það kostaði mig samtals 40.182kr svo sagði læknirinn mér að það vantaði ennþá í hann inntaksbarka sem hann pantaði og sá kostar á bilinu 7-8000kr án vinnu. einnig tjáði læknirinn mér að þrátt fyrir að hann hafi lappað upp á sjúklinginn þá væri hann ennþá frekar slappur og ætti ekki langt eftir ólifað nema ég hendi í hann svona 100.000kr í viðbót í hann. ofan á þetta hringdi tannlækirinn í mig og sagði komdu til mín á miðvikudaginn næsta, ég ætla laga tennurnar þínar og það mun kosta 136.000kr.

vita þessir læknar ekki að desember er tími ást og friðar en ekki eyðileggingar og tortýmingar

This page is powered by Blogger. Isn't yours?