One Love <$BlogRSDURL$>
KÖNNUNIN

Hver er besti pókerspilarinn?

Dooroogangster
Maxó níu níu
Gunzinn da sprengja
Homie Q
Raggers sykur sonur
Ívar Baldvinnson aka LoneRanger
Kanoute
Guns3000
Biggit Le BIG
Tommi Óma
Joey BBQ
  Current Results

sunnudagur, október 31, 2004

Hafsteinn átti afmæli í gær 

Steini feiti frændi átti afmæli í gær og hann fór út að borða og borgaði 10.000 kall fyrir máltíðina og svo fór hann í partý með dagný og olla og einhverjum svikurum hans. steini drakk svo öl enda fékk hann leyfi frá lovísu af því að hann var orðinn 20 ára. hann varð blindfullur og þetta var nú bara í annað sinn sem ég hef séð hann steina fullan enda drapst hann líka kl 3 og þurfti að láta lovísu halda á sér út í bíl
tíminn er fljótur að líða, í gær vorum við litlir hálfvitar í hólabrekkuskóla að semja ljóð, í dag fer hafsteinn á fyllerí og drepst niðrí bæ með tryggva skít

Diddi og Hafsteinn !!

Diddi og hafsteinn eru bestir
enda þykir það all flestir
þeir gera engar skyssur og ganga ekki með byssur.
Þeir eru bestir með knöttinn
og læra líka um hnöttinn
Þeir eru góðir í körfubolta enda eru þeir kallaðir hafsteinn shaqadakk og diddi jordan.
Núna erum við flúnir enda erum við búnir !!..........................

Höf. Sigurjón og Hafsteinn
Bekk 52.


Meistarataktar !

Romario , Bebeto , Romario já þetta er spil
og í vörninnni er ekkert bil .
jahá þetta vill maður sjá ég segi nú bara vá.
Maður sér nú bara kalda kappa
og fyrir þeim verður að klappa
og nú kemur enn eitt markið stöngin inn
en við verðum að láta þetta duga um sinn
því nú flautar dómarinn að leikurinn er búinn

Höf: Sigurjón b.62


Þessir eru bestir

Baggio, Weah eru bestir!
Romario Bebto eru vestir
þeir skjóta í samman og sláin inn
sumir kalla þá guðin sinn
þeir æða með boltan út og inn
og kalla svo bara boltinn er minn

Romario er að gráta
því hann þolir ekki hlátra.
Domarinn kemur og seigir
hættu að gráta
þeigiðu ég þoli ekki hlátra

Höf: Hafsteinn 62

laugardagur, október 30, 2004

Hræddur 

svo virðist vera sem garpurinn jafi orðið hræddur, hann sá að menn var að fara að ljóstra því upp hver maðurinn væri á bakvið grímuna og því hafi hann ekki átt annars kosta völ en að fara í felur. skil samt ekki hverjir kjósa gunzinn þetta er augljóslega ekki gunzinn þetta er pottþétt raggers kannski stjáni eða alli

,,jæja ég held að þetta verði síðasta færsla GARPSINS því að það virðist enginn vera að lesa þeSSa vitleysu....! enginn comment og engin aðdáendabréf. ég er býsna sár. þetta er mín viðkvæma hlið. þið hafið bugað mig! þetta er síðasta færsla GARPSINS!!!"

PROEVOLUTION4 

dooroo og gunzinn tóku rimmu í pro í gær eftir langt hlé og var þetta jafnframt þeirra fyrsta rimma í PRO4 og alltaf jafn gaman af því að dooroo tók gunzinn og flengdi hann aðeins létt. 6 leikir, gunzinn var man utd og dooroo inter
1. leikur: gunzinn vann 2-1 eða eitthvað man það ekki
2. leikur: dooroo vann 2-1 eða eitthvað man það ekki
3. leikur: þarna byrjaði þetta fyrir alvöru, dooroo vann 5-0 og þetta var frekar harsh penetration fyrir gunzinn
4. leikur: gunzinn var yfir 4-1 í hálfleik en hvað gerist dooroo vann 4-5, háðuleg útreið
5. leikur: gunzinn nær aðeins og borga fyrir sig og vinnur 4-1, dooroo var hinsvegar orðin dálítið þreyttur í puttunum eftir að hafa skorað svona mörg mörk
6. leikur: dooroo vann 3-1
lokaniðurstaða: 4-2 fyrir dooroo

fimmtudagur, október 28, 2004

Úrslit 

Hvort á ég að gera? [24 votes total]

halda upp á afmælið mitt (16) 67%
fara til Danmerkur (8) 33%

ég var nú búinn að ákveða að dissa ykkar atkvæði og fara til útlanda, annað hvort til danmerkurs eða englands en svo var ég svikinn á báðum vígstöðum og þess vegna stóð ég uppi með ekki neitt í höndunum því ég gat ekki verið að skipuleggja eitthvað afmæli með svona stuttum fyrirvara. ég veit ekki, kannski ætti maður að reyna að halda eitthvað með heimi en það kemur bara í ljós, ólíklegt en væri stemmning

ný könnun um garpinn, helv... garpinn

,,bubbi er mesti snillingur sem ísland hefur alið, fyrir utan mig GARPINN að sjálfsögðu. GARPURINN GARPURINN GARPURINN GARPURINN. já ég elska mig og ég er bestur."

Lil' Kim 


fuck time ya wastin I got no patience for little dick tastin I'd rather
go Solo so I can get some Heaven and be the fuck out After Seven

Svikari vikunnar 

svikari vikunnar hefur skipað sér stóran sess hér á síðunni og nú fær hann jafnvel enn stærri, þessi svikari. hann fer illa með fólk og á þennan titil fyllilega vel skilin. svikari vikunnar er albert brynjar ingason

Bílinn er rústi 

lenti í svo skemmtilegu atviki um daginn. var að keyra vesturlandsveginn þegar að eitthvað drasl á veginum kom á móti mér og ég hélt að þetta væri bara eitthvað fjúkandi rusl en nei þegar að þetta lenti á bílnum þá var þetta nú allt annað en fjúkandi drasl því þvílík voru lætin og höggin og allt í einu sá ég að framrúðan var brotin. ég stoppaði til að athuga þetta og þá sá ég að bíllinn minn var í hönk, grillið brotið og allur rispaður á húddinu, stuðaranum og á hliðinni og ég bara fokk hvað gerðist. þegar ég athugaði þetta fjúkandi drasl þá var það einhver skjár og allt fullt af glerbrotum allstaðar og þá áttaði ég mig þá á því að það var enginn vindur og þess vegna hefur þetta komið af bílnum sem mætti mér en hann var auðvitað löngu farinn og ekki möguleiki fyrir mig að finna hann. við erum að tala um að þetta er tjón uppá 200.000kr og sjálfsábyrgðin hjá mér er 76.000kr TAKK FYRIR

HÆTTU AÐ SENDA MÉR SMS 


þriðjudagur, október 26, 2004

Pirraður maður 

ég var svo pirraður á afmælisdaginn minn, þetta var fokktop afmælisdagur. menn sem ég taldi að myndu nú muna eftir manni gáfu bara skít í mann ég meina unnsa systir hans mola sendi mér kveðjur í bæði númerin en hvað gerir maður eins og hafsteinn frændi? hann fer upp á hótel loftleiðir og syngur afmælissöngin handa MÖMMU HANS OLLA!!! sem á víst afmæli sama dag og ég en hann gerir ekkert fyrir mig. gunnar hilmar fór bara í bíó með þránni og eitthvað svona út um allan bæ, þetta er ekki gaman og þess vegna fór ég bara í ríkið og verslaði fyrir mína sönnu vini alla, daða og knút og bauð þeim á fyllerí en þeir vildu frekar drekka á laugardaginn sem þeir og gerðu en ég var bara rólegur á bíl að taka myndir af því að ég nenni ekki að drekka lengur.
kvöldið var svona ágætt hitti óla trommara sem var bara á bolnum að sýna bicepana og var bara að berja menn svo hitti ég gunna nutcase og hann var eitthvað ekki sáttur hvað hann var lítill og svo var bara allt í rugli, slagsmál út um allt og knútur að berja homma en besta sagan er af alberti sem fann sér kellingu og fékk hana heim með sér í the bigbachelorpartyhouse en náði með sinni alkunnu snilli að hrekja hana heim áður en að þau byrjuðu að fornikeita

setti inn einhverjar myndir herna

föstudagur, október 22, 2004

Afmælisbörn dagsins 

Arsene Wenger
Lawrie Sanchez
Andres Palop
Michel Salgado
Daniel Nardiello
Ástþór Jónsson
Heimir Árnason
Sigurjón Kevinsson
Eiður Guðjohnsen
Biggi ópera
Einar körfuboltagaur

svo virðist sem allir hafi gleymt því að ég ætti afmæli, eða fólki stendur bara á sama. ég bjóst allavegana við einhverjum kveðjum um miðnætti eins og venjan hefur verið en viti menn... ekki neitt, ekki ein einasta kveðja. svo var ég líka á msn eftir miðnætti og var að tala við menn eins og hilmar gunnar, sperrta berta, downloadaða og fleiri og engin þeirra sagði neitt, ekki neitt, sérstaklega skrýtið með sperrta því að ég óskaði honum ójá. svo vaknaði ég í morgun, ekkert frá mömmu sem fór bara í vinnuna og sama með systur mína, var vakandi með pabba í klukkutíma þangað til hann fattaði það, bróðir minn sagði ekki neitt. var svo fyrri til að óska hinum afmælisbörnunum til hamingju og heimir svaraði bara ég ætla að vera hauslaus í kvöld og á morgunn, ekkert til hamingju eða sömuleiðis. ástþór svaraði ekki einu sinni tilbaka. ég skal segja ykkur það að dooroo er sár SÁR

Albertshornið 



Pro evolution4 er minn snípur(kærustur eru ofmetnar) says:
hey mig dreymdi i nott parta af fylleríi með þér , þegar eg sagði að eg mundi oska þess að eg væri alltaf fullur
Pro evolution4 er minn snípur(kærustur eru ofmetnar) says:
fastur þannig
Pro evolution4 er minn snípur(kærustur eru ofmetnar) says:
en pældu í því djös snilld væri það
Dooroogangster says:
hvenær sagðiru það aftur
Pro evolution4 er minn snípur(kærustur eru ofmetnar) says:
þegar eg festist inna klosetti
Pro evolution4 er minn snípur(kærustur eru ofmetnar) says:
og hringdi á lögguna og hún hlóg að mér
Pro evolution4 er minn snípur(kærustur eru ofmetnar) says:
!!!!!
Pro evolution4 er minn snípur(kærustur eru ofmetnar) says:
það var böggandi 40minotur

hann albert kallinn læsti sig inn á baðherbergi í partýi einmitt þegar allir voru að fara og hann hringdi á lögguna og öll ráð voru reynd en það eina sem albert þurfti svo að lokum gera var að snúa lyklinum til vinstri en ekki hægri

fimmtudagur, október 21, 2004

Þetta er málið 

Á morgunn er icelandexpress.is að fara að selja miða til danmerkur á 99kr ísl og þeir segja bara fyrstur kemur fyrstur fær og ég ætla að vera fyrstur. spurning um að kaupa bara nokkrar ferðir og skella sér nokkrum sinnum út til greddans svo er auðvitað hægt að fljúga einhvert annað frá danmörkinni eins og til englands eða svíþjóðar. þetta er æði. ég held að ólafur karl ætti að huga að þessu með mér aðeins eða þá hinn

Dr. Bogi er rosalegur 

shit ég var að lesa á fótbolta.net að haukur ingi þurfi að vera frá í ár í viðbót vegna læknamistaka. hann sleit krossbönd fyrir einhverjum mánuðum síðan og fór í aðgerð og svona. er búinn að vera að æfa og æfa, voða duglegur en núna kemur í ljós að læknirinn sem gerði aðgerðina setti krossbandið á rangan stað. ég var nú búinn að tala um hvað þessi læknir væri algjör steik og því kemur þetta ekkert rosalega á óvart. þetta er náttúrulega alveg rosalegt fyrir kallinn að lenda í þessu, missir þarna út tvö ár, má því segja að þessi læknir eigi nokkuð stórann þátt í því að haukurinn fari kannski aldrei aftur út í atvinnumennsku, ef það átti þá að verða.


pósturinn sem ég gerði um lækninn 12. júní:

ja rosalega gaman ad vera med rifinn lidtofa hahahahahahahaha.

dr. bogi johannesson a ad framkvaema adgerdina og er doktorinn tekktur fyrir ad vera algjor steik, hefur vist oftar en einu sinni gert adgerd a vitlausri lopp. hann hringdi i mig i morgun og var ad lata mig vita ad hann hefdi gleymt ad lata mig vita ad adgerdin atti ad vera i morgun. hann var sem sagt maettur tarna upp a laeknastofu a laugardagsmorgni med odrum laekni til tess ad gera vid hned a mer en fattadi svo ad eg vissi ekkert af tessu. svo spurdi hann mig hvort eg vaeri nokkud ad fasta tvi madur tarf ad fara i tessa adgerd a fastandi maga og ta gaeti eg bara komid til hans og farid i adgerdina, audvitad ekki bogi helduru ad eg se oft bara ad leika mer ad fasta. eina radid var bara ad panta nyjan tima og ta spurdi hann svona fjorum sinnum hvort eg gaeti komid a manudaginn kl half fimm og eg sagdi alltaf ja en svo i lokin segir hann ok ta sjaumst vid a manudaginn kl 14:30

hver man ekki tegar hera song "fuck me doctor, fuck me doctor"


Ég spyr 

ætlar einhver á non phixion í kvöld? það verður magnað shit mig langar svo að fara
á einhver lagið drop it like it's hot með snoop dogg? ef svo þá má hinn sami láta mig fá það takk
spilar ekki einhver champ 01/02? ekki þetta nýja drasl sem er bara drasl
hver er garpurinn? það er einhver sturlun í gangi þarna á garpurinn.blogspot.com
HVAR ER GRILLIÐ?? ég hef ekki séð grillið í ár og daga. skil þetta ekki, ég sá helgu dóru á bar bistró fyrir einhverjum vikum og hebu á ísland - svíðþjóð að vinna sem fréttaritari fyrir fótbolta.net annars ekkert í marga mánuði

miðvikudagur, október 20, 2004

HVER ER GARPURINN??!!!!!!! 

,,sonur minn er enginn hommi, hann er fullkominn eins og ég! já ég GARPURINN the UNLOADER er fullkominn.. lærist þér að skilja það lesandi góður og lærist þér að dá mig og mín skrif og segja öllum frá GARPINUM!!!! "

skora á garpinn að undirrita undir réttu nafni!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

þriðjudagur, október 19, 2004

Svaramaður vikunnar 

svaramaður vikunnar er enginn annar en eyjólfur héðinsson. þessi nýjasti atvinnumaður okkar íslendinga var að standa sig gríðarlega vel hér í viðtali á dooroo og gerði enn betur á fotbolta.net. ein besta hin hlið sem maður hefur séð og því fær hann þann heiður að vera útnefndur svaramaður vikunnar hér á dooroo

Gústi þreytti góður 

það þarf að þakka gústa fyrir síðast, hann stóð sig vel og á hrós skilið

mjög gaman að vera veikur, svo þægilegt. ég er einmitt veikur núna og mér líður svo vel aaahhhh

mánudagur, október 18, 2004

Hey-jó 

eyjólfur hvað ertu? flottur
hvað ætlaru að verða? flottari
ertu að meika það í lokeren? já ég frétti það, hef samt ekki hugmynd um það
eru tvær æfingar a dag? stundum, kannski svona tvisvar í viku
hver er bestur í lokeren? hann heitir eitthvað belgískt, hann er belgi og heitir Doll
er marel góður? hann er meiddur núna er eki að æfa, sép lítið til hans
hver er besti vinur þinn í lokeren? vinur minn? ég er að bonda vel við Fílabeinsstrandargaurana, allavega betur en við gaurana frá Gíneu, skil Gíneugaurana ekki alveg
ertu að fíla stóru drjólana þeirra? allir blökkumenn eru ekki með stór typpi, það eru bara sögasagnir, hef séð fullt af þeim hérna, sumir eru bara með lítil typpi
talandi um typpi, hvernig líður þínu í öllu þessu veseni? hallavar að fara í dag, það var leiðinlegt, komu tár þegar við kvöddumst, ég er ekki jafn mikill nagli ogég hélt. er með álagsmeiðsl á typpinu eftir helgina, vorum eins og villtar kanínur ég og halla. en núna er hún farinn þannig að nú er það bara rúnkið aftur
ok svo að halla var í heimsókn hvað varð þá um þá belgísku? hvaða viðtal er þetta? er þetta fyrir skólann? (þykist ekkert vita en ójá við vitum, hann er kominn með viðhald í lokeren)
hver er fallegasti leikmaðurinn í landsbankadeild kvenna? þú sérð það bara á morgun
hver er framtíðin? þú ert nú eitthvað ruglaður diddi, hvað ertu að spurja að þvíÐ, ég veit ekkert um framtíðina maður
ertu sáttur með að vera ekki í u21 landsliðinu nú þegar þú ert orðinn atvinnumaður? ég er ekkert atvinnumaður, hvað ertu að þykjastvera hérna? hvaða spurningakjaftæði er þetta?
ertu búinn að horfa aftur á landsleikinn ísland - ítalía? nei ég á eftia ð gera það, geri það er ég kem heim
á að hrynja í það þegar þú kemur heim? jájá 27.nóv, það er laugardagur þegar ég kemheim, frétti að þá yrði eitthvað rugl um kvöldið
væta aðeins í kellingunum? jamm jamm
hvað með höllu? hún erbara hress held ég, var að lenda
hvernig finnst þér nafnið guðbrandur máni? það veit ég ekki, heyrðu er að fara ða sofa, klukkan margt
kl hvað ferðu að sofa? 12, eða eithhvað svoleiðis
er það ekki alltof seint fyrir atvinnumann? segðu
og kl hvað byrja æfingar? hálfellefu þarf að mæta samt alltaf hálftíu
viltu segja eitthvað að lokum? góðar stundir diddi tekkaðu á hinni hliðinni á morgun. heyrðu farinn. góða nótt

Eyjó das playa 

eins og menn vita þá er hann eyjólfur héðinsson staddur í belginni að sparka bolta. hann er ekki við eina fjölina felldur drengurinn og trúði mér fyrir því að hann væri nú þegar kominn með hjásvæfu þarna úti. ég spurði hann nú hvort að það væri sniðugt nú þegar barnið væri á leiðinni og þá tjáði hann mér að hann vildi gera mig eða trausta bílstjóra að guðföður barnsins, á eftir að ákveða það. þá fórum við að tala um nafn á barnið og mér leist nú best á sean carter en jolli vildi hafa það hjörtur torfi, náttúrulega hans ákvörðun en ég myndi hafa það sean carter. annars líður kallinum bara vel þarna úti með 55.000kr á mánuði og hann skilar kveðju. ég fékk hann svo í smá viðtal, sem kemur hér inn innan skamms
jæja hérna er myndin af honum með nýju kellingunni


Garpurinn=Raggers 

,,Já xxx Rotweiler hundarnir voru góðir maður. Það minnir mig nú bara á þegar ég var í Jerúsalem með föðurmóður minni árið '96. Við gengum uppá fjall sem hét Gorlota. Þar sáum við nokkur lömb en þar voru samt aðallega kýr sem voru að hafa mök. Þetta líkaði elsku ömmu ekki og leið okkar hélt niður aftur, þar sem við stoppuðum á krá einni sem hét "Beer and naked women" við héldum þar inn og fengum okkur nú eitt stykki bjór. Kemur ekki þessa rosalega skvísa og byrjar að nudda rassinum framan í mig og vitiði ég hélt að amma myndi fá geðveikiskast, hún stökk á þessa gellu og byrjaði að lemja hana í klessu en þá komu öryggisverðirnir og hentu okkur út. Ég var að sjálfsögðu ekki sáttur með ömmu þar sem ég var að komast í feitt en ég vildi auðvitað ekki láta henni líða illa þannig að gangan hélt áfram.

já knattspyrnan getur verið margslungin bara eins og mannslíkaminn. heyrði ég einhverntímann Albert Ingason segja. ekki veit ég hvað gaurinn meinti með því en let's face it, Alli er steiktur snilli."

laugardagur, október 16, 2004

Albertshornið 


jebb ný saga í albertshornið en þó ekki um albert. hún er um dreng sem undra steinn heitir birgison. kappinn var staddur í því landi englandi í svona fótboltaferð. drengirnir skella sér á domino og ætla að fá sér pizzu. undra langaði í eina með pepp og skinku en vandamálið er að hann er ekkert voðalega sleipur í enskunni og kunni því ekki að segja skinka á ensku, hann spyr því strákana hvað hann eigi að gera og þeir segja undri segðu bara i'm gonna have one pizza with pepperoni and sperm please. framhaldið eins og gefur að skilja.... sprengja...
...seinna í ferðinni þegar menn höfðu uppgötvað ensku hæfileika undra þá fóru menn svona að testa hann og einn spurði undri veistu hvað sky þýðir? hann svarar að bragði frekar fúll yfir þessari stríðni alltaf, sko strákar ég er ekki heimskur ég veit alveg að sky þýðir fréttir.... sprengja...


minnir mig á þegar maggi már var í englandi og bað um naked burger

KristjánVald 

kallinn kristján aka kvc aka kristjanval aka kriss aka kidd the rider in tha hall er heldur betur að koma sér í fréttirnar núna maður. var að sjá myndir af honum inn á batman þar sem hann var á fleygiferðinni niður laugaveginn á innkaupakerru eyðileggja svona 3 bíla mjög fyndið en það er búið að taka þetta út bara því miður, útaf einhverrji ákæru og leiðundum


Lögmaðurinn 

prófið búið og maður hraunaði svona vel upp á hnakka. var að vinna alla vikuna og lærði lítið sem ekkert og maður varð að styðjast við common sense[the light] sem virkar ekki í gegnum heilt próf.
svo nú er ég bara að pæla í að flýja land nennisu ekki og ég verð að ákveða mig hvert ég á að fara, england eða danmörk?
england myndi vera 19.0kt - 28.okt, 21.320kr. sjá chelsea - cska moscow meistaradeild, chelsea - blacburn deildin, chelsea - west ham bikar.
danmörk myndi vera 20.okt - 27.okt, 18.710kr. vera í góðu yfirlæti í denmark og ég efa það ekki að greddi myndi sjá vel um mann og svo myndi óli trommari koma með

Ligeglad 



Jebb berjann og svo eru menn hressir á hlírabol 





fimmtudagur, október 14, 2004

Alsbert Ingas cacao hornið 


jæja þá byrjum við...
albert ingas var að labba í gegnum dyr og rakst með tánna í þröskuldinn sem er eins og allir þekkja mjög óþægilegt og því öskraði hann upp fyrir sig eins og stelpa með píkuna í hálsinum. strákunum brá auðvitað við þetta og spurðu hann hvað gerðist, hann svaraði að bragði að hann hefði rekist í þetta þarna á gólfinu. þá spurðu þeir hann hvaða þetta?, hann svaraði þetta þarna og benti á þröskuldinn og þá spurðu strákarnir hann hvort hann vissi ekki hvað "þetta þarna" héti, hann svaraði því neitandi. eftir mikil hlátrasköll sögðu þeir honum að "þetta þarna" héti þröskuldur en þá sagði hann ,,nei þið platið mig ekkert svona, þröskuldur er fiskur!!!" ....og hann var svo alvarlegur greyið

Uppboð 

hvað haldiði að maður hafi ekki bara fundið linsuna hans magnúsar headmanns þegar ég var gera við völlinn. menn töluðu um að setja þetta á ebay en ég er að pæla í að eiga hana bara sem minjagrip.



en hvað með beckham?
greyið beckham er svo heimskur að segja frá því að hann hafi fengið gula spjaldið viljandi. svo var hann að hreykja sér af því að vera svo gáfaður að fatta að næla sér í það. HEIMSKA FÍFL AFHVERJU VARSTU AÐ SEGJA ÖLLUM HEIMINUM FRÁ ÞVÍ AÐ ÞETTA VAR VILJANDI EF AÐ ÞÚ ERT SVONA GÁFAÐUR nei ég held því miður að það sé ekki mikið í kollinum á kallinum.

miðvikudagur, október 13, 2004

Töffarar 



mánudagur, október 11, 2004

Tékkið á þessu!!! 

video þar sem snargeðveikur landsliðsþjálfari spánar kallar henry svartan skít

sunnudagur, október 10, 2004

Albertshornið? 

hvernig væri að hafa svona albertshorn, segja gullmola af alberti ingas svona annars lagið, það verður engin svikinn af því. albert er þéttur og það líkar öllum vel við hann nema kannski kristján og þess vegna er mjög gott að hafa svona albertshorn


fimmtudagur, október 07, 2004

Priceless 

hvað er að gerast er einhver dauður þarna?

Due to some alchoholic abuse this image has been removed

þetta er greinilega mannvera!

Due to some alchoholic abuse this image has been removed

ætli þessir hafi drepið hann?

Due to some alchoholic abuse this image has been removed

nei þetta er bara hilmar gunnar í áfengisdauða

Due to some alchoholic abuse this image has been removed

Fokkin skólinn 

ég fer ekki til danmerkur allavegana ekki þessa helgina með joey my man sem hefði verið skemmtilegt. nei ég get það ekki útaf landsleiknum á miðvikudaginn og svo er próf laugardaginn eftir. fokkin skólinn maður mig langaði svo að fara en núna er ég að gæla við að fara þá frekar helgina 22.okt en þá ég einmitt afmæli og planið var að halda upp á það en þetta er eiginlega eina helgin því að eftir hana er fótboltinn byrjaður. ég veit ekki hvað ég á að gera. langar einhverjum með til danmerkur?

Úrslit 

Hvaða nylon stelpu viltu mest flengja? [57 votes total]
Steinunni (6) 11%
Ölmu (9) 16%
Emilíu (16) 28%
Klöru (26) 46%

comments:
Gunzinn: steinunn er junk og er sverðfiskur


Hvor er flottari Theresa eda Marissa? [31 votes total]
Theresa (22) 71%
Marissa (9) 29%

já ég get verið sammála þessum niðurstöðum, lesendur vita greinilega hvað þeir eru að syngja. theresa var svo miklu flottari en marissa grenjandi barbídúkka sem getur ekki leikið


Gefið'a upp fyrir Knúti 

knútóinn er eðal maður vikunnar enda bjargaði hann lífi mínu með því að laga tölvuna mína. mér var farið að líða svo illa hér í sveitinni þannig að hann lagaði tölvuna mína og flutti sig nær mér og gerði þannig líf mitt lifanlegt aftur. það þarf líka að þakka daðanum en hann veitti skjól þegar á reyndi og hélt mönnum á tánum og svo kannski allanum líka en hann gefur yfirleitt svona good vibrations.
það má nú búast við ýmsu af þessum þremur mönnum á næstu mánuðum þar sem þeir eru fluttir saman í the bigbachelorpartypenthouse í grafarholti og ég býð ekki í það hvernig það endar allt saman

þriðjudagur, október 05, 2004

Kaupmannahöfn 

ok ég var að ákveða ég ætla til danmerkur næstu helgi, joey my man var að segja mér að hann er að fara og ég ætlaði alltaf að heimsækja gredda og ég er einmitt í fríi núna þannig að ég ætla að nýta tækifærið og heimsækja gredsky break og fara til útlanda með joey. YES
kærastan hans gredda:


mánudagur, október 04, 2004

Heilalausir landsliðsþjálfarar 

ég vissi ekki hvert ég ætlaði þegar ég sá á fótbolta.net að guðmundur sævarsson væri kominn í landsliðið og þá til þess að fylla skarð þórðs guðjónssonar ef hann skyldi ekki getað leikið, ER EKKI ALLT Í LAGI!!!!!. guðmundur sævarsson common með fullri virðingu fyrir honum þá er hann ekki maður í landsliðið, einhverstaðar heyrði ég eða las að guðmundur væri frændi ásgeirs og það þykir mér heldur þunnt ef frændsemin ein gerir það að verkum að hann er kominn í landsliðið, shit þetta er fáránlegt ég skil þetta ekki.
peace out

sunnudagur, október 03, 2004

Sérstakt 

gunzinn á vini út um allan heim the gunz corporation er víst að gera góða hluti í tælandi og öðrum stöðum. eyjólfur héðins fótboltamaður er einmitt staddur í belgíu að sparka í bolta og þar komst hann í kynni við einn vin
,,Eyjó says:
Ok svo er leikurinn búinn að ég er að labba í áttina að búiningsklefanum en ég verð að labba í gegnum svona hlið og þar var þessi ógeðslega stelpa og ég svona reyni að leiða hana hjá mér en neinei þá æpir hún bara "Hey can I take a picture of you? I am a friend of Gunnar Hilmar Kristinsson" og þar með varð ég að horfa á hana og annað eins virðini hef ég ekki séð á ævinni''


föstudagur, október 01, 2004

Joey my man 

,,Fimm leikmenn úr meistaraflokki HK hafa verið boðaðir í æfingaleik 21-árs landsliðs karla sem fram fer á Tungubökkum í Mosfellsbæ á föstudaginn. Þangað eru boðaðir 27 leikmenn sem taka þátt í leiknum. HK-ingarnir eru Atli Guðnason, Brynjar Víðisson, Finnur Ólafsson, Jóhann Björnsson og Stefán Eggertsson en þeir voru allir í byrjunarliði HK gegn Keflavík í undanúrslitum bikarkeppninnar á sunnudaginn''

Björnsson kallinn kominn í landsliðið, hver hefði trúað þessu fyrir nokkrum árum. drengurinn hefur náð ótrúlega langt á stuttum tíma og á hann skilið klapp fyrir ---> KLAPP KLAPP og þrefallt húrra ---> HÚRRA HÚRRA HÚRRA. joey mun svo fagna þessum tímamótum með mér og fleirum annað kvöld í góðu glensi

This page is powered by Blogger. Isn't yours?